Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Prófun á rýmingarflautum í Grindavík og Svartsengi 25. febrúar 2026

Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 kl. 11:00 verður framkvæmd prófun á rýmingarflautum í Grindavík og við Svartsengi. Prófunin er hluti af reglubundnu verklagi til að tryggja virkni búnaðar og viðbúnað viðbragðsaðila.

Rýmingarflauturnar munu fara tvisvar í gang, annars vegar með fjarræsingu og hins vegar með handræsingu. Markmið prófunarinnar er að staðfesta að búnaðurinn virki sem skyldi og að viðbragðsáætlanir séu í samræmi við verklag.

Mikilvægt er að íbúar, starfsfólk og gestir á svæðinu séu upplýst um að um prófun sé að ræða og að ekki sé þörf á að rýma svæðið. Grindavík er opin almenningi og verða sett upp skilti til að upplýsa gesti og aðra sem kunna að verða varir við flauturnar.

Viðbragðsaðilar munu jafnframt nýta prófunina til að æfa eigin verkferla og samhæfingu á vettvangi, sem er mikilvægur þáttur í áframhaldandi öryggisvinnu á svæðinu.