Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

REGENERATE samstarfsaðilar hittust í Finnland

Í síðustu viku tók Markaðsstofa Reykjaness þátt í fundi í tengslum við alþjóðlega verkefnið INTERREG REGENERATE sem haldinn var í Finnlandi. Á fundinum komu saman samstarfsaðilar frá Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð og Írlandi til að fara yfir framvindu verkefnisins, deila reynslu og þekkingu og vinna að næstu skrefum í þróun nærandi ferðaþjónustu á norðurslóðum.

REGENERATE er alþjóðlegt samstarfsverkefni sem styrkt er af Interreg Northern Periphery and Arctic (NPA) áætluninni og stendur yfir á árunum 2025–2028. Markmið verkefnisins er að styðja svæði við að þróa nærandi (e. regenerative) ferðaþjónustu þar sem áhersla er lögð á að ferðaþjónusta skili jákvæðum áhrifum fyrir náttúru, samfélög og staðbundið atvinnulíf.

Á fundinum í Finnlandi tóku samstarfsaðilar þátt í vinnustofum, kynntu stöðu verkefnisins á sínum svæðum, skoðuðu dæmi um nærandi ferðaþjónustu og ræddu hvernig hægt er að þróa verkfæri, fræðsluefni og samstarf sem styður við sjálfbæra þróun áfangastaða.

Nærandi ferðaþjónusta sem skilar samfélaginu ávinningi

REGENERATE byggir á þeirri hugmynd að ferðaþjónusta eigi ekki aðeins að lágmarka áhrif sín heldur einnig að hafa jákvæð áhrif á þau svæði sem hún byggir á. Með því að efla tengsl við náttúruvernd, menningararf, samfélög og staðbundin fyrirtæki er hægt að skapa öflugri og sjálfbærari áfangastaði til framtíðar.

Á Reykjanesi er verkefnið unnið undir forystu Markaðsstofu Reykjaness í samstarfi við Reykjanes UNESCO Global Geopark, GeoCamp Iceland og fjölbreyttan hóp hagaðila. Verkefnið styður við áframhaldandi þróun Reykjaness sem áfangastaðar þar sem náttúra, menning og samfélag njóta góðs af ferðaþjónustu og þar sem gestir geta lagt sitt af mörkum til jákvæðrar þróunar svæðisins.

Samstarf sem skapar tækifæri fyrir framtíðina

Með þátttöku í REGENERATE fær Markaðsstofa Reykjaness tækifæri til að vinna náið með alþjóðlegum samstarfsaðilum, deila reynslu frá Reykjanesi og læra af lausnum sem þróaðar eru á öðrum svæðum á norðurslóðum.

Helstu verkefni REGENERATE fela meðal annars í sér:

  • kortlagningu og greiningu á stöðu ferðaþjónustu á þátttökusvæðum,

  • söfnun og miðlun góðra fyrirmynda í nærandi ferðaþjónustu,

  • þróun fræðsluefnis, verkfæra og leiðbeininga fyrir ferðaþjónustuaðila,

  • uppbyggingu svæðisbundinna samstarfsvettvanga (Regenerative Travel Hubs),

  • og mótun stefnu og aðgerða sem styðja við sjálfbæra þróun áfangastaða.

Þekkingin og reynslan sem skapast í verkefninu mun nýtast bæði á Reykjanesi og öðrum svæðum á Norðurslóðum sem vinna að því að þróa ferðaþjónustu sem skilar varanlegum ávinningi fyrir náttúru, samfélög og gesti.