Reykjanes á alþjóðlegu ferðasýningunni ITB Berlin
Dagana 3.–5. mars tók Markaðsstofa Reykjaness þátt í ferðasýningunni ITB Berlin í Þýskalandi, sem er ein stærsta og mikilvægasta ferðaþjónustusýning heims. Á sýningunni koma saman þúsundir sýnenda og ferðafagfólks frá yfir 160 löndum og er hún mikilvægur vettvangur fyrir samtal, tengslamyndun og viðskipti í alþjóðlegri ferðaþjónustu.
Íslandsstofa skipuleggur íslenska þátttöku á sýningunni þar sem fjölmörg íslensk ferðaþjónustufyrirtæki og markaðsstofur landshlutanna kynna vörur sínar, þjónustu og upplifanir fyrir alþjóðlegum ferðakaupendum og samstarfsaðilum í greininni.
Hildigunnur M. Kristinsdóttir, verkefnastjóri miðlunar hjá Markaðsstofu Reykjaness, sótti sýninguna fyrir hönd markaðsstofunnar og átti þar fundi og samtöl við ferðaskrifstofur, ferðaskipuleggjendur og aðra samstarfsaðila í ferðaþjónustu um Reykjanes og þau tækifæri sem svæðið hefur upp á að bjóða.
„ITB Berlin er mikilvægur vettvangur fyrir okkur til að eiga samtal við alþjóðlega samstarfsaðila, kynna upplifanir á Reykjanesi og styrkja tengsl við ferðaskipuleggjendur sem hafa áhuga á svæðinu. Það er alltaf ánægjulegt að finna áhuga fólks á Reykjanesi og þeirri einstöku náttúru og upplifun sem svæðið býður upp á,“ segir Hildigunnur.
Ferðaþjónustufyrirtæki sem starfa á Reykjanesi tóku einnig þátt í sýningunni, þar á meðal Blue Lagoon, Bus4u Iceland, Blue Car Rental, Icelandia og Prime Tours, sem kynntu þjónustu sína og upplifanir fyrir alþjóðlegum ferðakaupendum og samstarfsaðilum.
Með þátttöku á sýningum á borð við ITB Berlin gefst mikilvægt tækifæri til að efla tengsl við alþjóðlega samstarfsaðila, kynna upplifanir og þjónustu á Reykjanesi og styrkja stöðu svæðisins á alþjóðlegum ferðamarkaði.
Markaðsstofa Reykjaness hvetur ferðaþjónustuaðila á svæðinu til að deila upplýsingum um nýjungar, þróun og áhugaverð verkefni sem eiga sér stað á Reykjanesi. Slíkar upplýsingar nýtast vel í kynningarstarfi svæðisins á alþjóðlegum vettvangi.
Upplýsingar má senda á netfangið: info@visitreykjanes.is

Fulltrúar frá markaðsstofum Reykjaness, Austurlands, Reykjavíkur, Norðurlands og Suðurlands.