Reykjanes jarðvangur tók þátt í EGN-ráðstefnunni í Finnlandi
Fulltrúar Reykjanes UNESCO Global Geopark tóku þátt í ráðstefnu European Geoparks Network (EGN) í Saimaa í Finnlandi dagana 16.–18. september. Á ráðstefnunni komu saman fulltrúar jarðvanga víðs vegar að úr Evrópu til að deila þekkingu, kynna verkefni og efla samstarf. Meðal þátttakenda frá Íslandi voru einnig fulltrúar GeoCamp og Kötlu jarðvangs.
Reykjanes átti fjölbreytt erindi á dagskrá. Fjallað var um menntun og samstarf við skóla, hvernig sólmyrkvinn 2026 varð vettvangur fyrir þátttöku samfélagsins, endurnýjandi ferðaþjónustu og viðbrögð samfélags og atvinnulífs við áföllum í Grindavík.
Sigrún Svafa Ólafsdóttir kynnti uppbyggingu skólanets í samstarfi við UNESCO-jarðvang og stýrði jafnframt vinnustofunni Ripples of Knowledge um útinám og miðlun þekkingar milli jarðvanga. Þuríður H. Aradóttir Braun flutti erindi um sólmyrkvann á Reykjanesi, verkefnin REGENERATE og Green Footprint og samstarf um seiglu samfélags og fyrirtækja í Grindavík. Arnbjörn Ólafsson frá GeoCamp fjallaði um hvernig vettvangsstaðir geta nýst í starfsþróun og Sigurður Sigursveinsson frá Kötlu jarðvangi kynnti jarðfræðileið við Eyjafjallajökul.
Ráðstefnan gaf þátttakendum tækifæri til að miðla reynslu af verkefnum á Íslandi og sækja nýjar hugmyndir í samtal við aðra jarðvanga.
Erindi og vinnustofa íslensku þátttakendanna:
-
Sigrún Svafa Ólafsdóttir: Building a UNESCO School Network Through a UNESCO Global Geopark: A Regional Model for Sustainability and Global Citizenship Education
-
Þuríður H. Aradóttir Braun: From Eclipse to Community: How Reykjanes UNESCO Global Geopark Mobilised Education, Tourism and Local Stakeholders Around the 2026 Total Solar Eclipse
-
Arnbjörn Ólafsson, GeoCamp: From Field Sites to Professional Learning
-
Þuríður H. Aradóttir Braun: REGENERATE: Advancing Regenerative Tourism Through Cooperation Between UNESCO Global Geoparks and Northern Peripheral Regions
-
Þuríður H. Aradóttir Braun: Green Footprint: Preparing the Next Generation of Regenerative Travellers Through UNESCO Global Geoparks
-
Sigurður Sigursveinsson, Katla Geopark: Eyjafjallajökull Geological Path
-
Þuríður H. Aradóttir Braun: From Crisis to Collective Action: Building Community and Business Resilience in Grindavík, Reykjanes UNESCO Global Geopark
-
Vinnustofa undir stjórn Sigrúnar Svöfu Ólafsdóttur: Ripples of Knowledge: Creating Outdoor Learning Community and Database through UNESCO Global Geoparks