Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Reykjanes jarðvangur hlýtur endurvottun

Á fundi stýrihóps UNESCO hnattrænna jarðvanga sem haldinn var 7-8 desember var umsögn úttektaraðila frá því í sumar tekin fyrir og niðurstaða fundarins er að Reykjanes jarðvangur fengi græna spjaldið að nýju fyrir næstu 4 ár.

Á fundi stýrihóps UNESCO hnattrænna jarðvanga sem haldinn var 7-8 desember var umsögn úttektaraðila frá því í sumar tekin fyrir og niðurstaða fundarins er að Reykjanes jarðvangur fengi græna spjaldið að nýju fyrir næstu 4 ár.

UNESCO, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna viðurkenndi Reykjanes sem UNESCO Global Geopark árið 2015. Það er ekki þar með sagt að Reykjanes jarðvangur geti flaggað þeim fána að vera UNESCO Global Geopark um ókomna tíð án þess að vinna fyrir því. Jarðvangar um allan heim fara í gegnum úttekt á fjögurra ára fresti að jafnaði. Þar eru framfarir og störf jarðvangsins skoðuð og einnig hverju þarf að vinna betur að o.s.frv. Eftir úttektina liggur fyrir niðurstaða sem getur farið á þrjá vegu, rauða-, gula-, og græna kortið. Fái jarðvangur rauða kortið missir hann titilinn UNESCO Global Geopark, gula kortið gefur jarðvangnum aðeins tvö ár til að bregðast hratt við tillögum til umbóta.

Græna kortið er svo besta mögulega útkoma þar sem jarðvangnum eru gefin fjögur ár til að vinna að tillögum til umbóta. Reykjanes jarðvangur fékk græna kortið í sinni fyrstu úttekt árið 2019 og aftur núna 2023 í sinni annari úttekt. Það er óhætt að segja að það góða starf sem hefur farið fram á Reykjanesi undanfarin ár hefur skilað þessum frábæra árangri. Stofnaðilar og stjórn Jarðvangsins á Reykjanesi eru því afar stoltir af verkefninu og ætla að vinna áfram að því að styrkja stoðir jarðvangsins.

„Það að fá hæstu einkunn er gríðarega þýðingarmikið fyrir jarðvanginn og fyrir alla sem að honum standa. Þetta er á sama tíma hvatning til að halda áfram að gera vel og styrkja enn frekar stoðir Reykjanes jarðvangs,“ sagði Daníel Einarsson verkefnastjóri Reykjanes Geopark í tilefni af áfanganum.

Sjá nánar...] https://www.unesco.org/en/articles/two-new-geoparks-proposed-endorsement-unesco-global-geoparks-council