Reykjanes kynnt á Vestnorden í Grænlandi 2026
Markaðsstofa Reykjaness tók þátt í ferðakaupstefnunni Vestnorden 2026 sem fór fram í Nuuk á Grænlandi dagana 22.–23. september. Þar var Reykjanes kynnt fyrir erlendum ferðasölum og meðal annars vakin athygli á Eldfjallaleiðinni, The Volcanic Way. Í kjölfarið tók Markaðsstofan þátt í að skipuleggja kynnisferð fyrir sjö ferðaskipuleggjendur um Suðvesturland.
Hildigunnur Marín Kristinsdóttir verkefnastjóri miðlunar sótti kaupstefnuna fyrir hönd Markaðsstofu Reykjaness. Á fundum með ferðasölum var fjölbreytt framboð svæðisins kynnt og rætt um möguleika á að flétta upplifanir á Reykjanesi inn í ferðaáætlanir gesta til Íslands.
Vestnorden er árleg ferðakaupstefna Íslands, Grænlands og Færeyja þar sem ferðaþjónustuaðilar hitta erlenda kaupendur. Hún er mikilvægur vettvangur til að mynda ný viðskiptatengsl og styrkja samstarf.

Eldfjallaleiðin og upplifanir á Reykjanesi
Meðal þess sem kynnt var á kaupstefnunni var Eldfjallaleiðin, The Volcanic Way, sem liggur um Reykjanes og Suðurland. Leiðin tengir saman eldfjallalandslag, náttúru og sögu svæðanna og hvetur ferðamenn til að gefa sér tíma til að skoða og njóta þess sem þau hafa upp á að bjóða.
Jafnframt var fjölbreytt þjónusta og afþreying á Reykjanesi kynnt. Eldfjallalandslag, jarðhiti og strandlengja skapa umgjörð um fjölbreyttar upplifanir. Þar við bætast söfn, veitingastaðir og gisting sem gefa gestum tilefni til að staldra við og njóta svæðisins.
Kynnisferð í framhaldi af Vestnorden
Daginn eftir kaupstefnuna tók við kynnisferð á Íslandi fyrir sjö ferðaskipuleggjendur frá Bandaríkjunum, Kanada, Póllandi, Austurríki og Singapúr.
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins skipulagði ferðina í samstarfi við Markaðsstofur Suðurlands og Reykjaness. Hópurinn fór vítt og breitt um Reykjanes, höfuðborgarsvæðið og vesturhluta Suðurlands og kynntist af eigin raun því sem svæðin hafa upp á að bjóða.
Ferðin heppnaðist afar vel og hópnum var hvarvetna tekið vel. Markaðsstofa Reykjaness þakkar öllum sem tóku á móti gestunum og lögðu sitt af mörkum til að gera heimsóknina eftirminnilega.
Þátttakan á Vestnorden og kynnisferðin eru liður í að auka sýnileika Reykjaness á erlendum mörkuðum og efla tengsl við ferðaskipuleggjendur.
