Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Safnahelgi á Suðurnesjum 17.–18. október

Safnahelgi á Suðurnesjum fer fram dagana 17.–18. október með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Frítt er inn á öll söfn og viðburði sem taka þátt og því tilvalið að skipuleggja rúnt um Reykjanes og kynnast menningu og sögu svæðisins.

Safnahelgi er árlegt samstarfsverkefni safna, setra og sýninga á Suðurnesjum sem opna dyr sínar fyrir íbúum og gestum. Um helgina verður boðið upp á skemmtilegar uppákomur og viðburði víðs vegar um Reykjanesskagann.

Helgin er gott tækifæri til að heimsækja nýja staði, líta við á uppáhaldssafninu eða njóta samveru með fjölskyldu og vinum.

Við hvetjum íbúa og gesti til að kynna sér dagskrána og taka Suðurnesjarúntinn!

Sjá dagskrá Safnahelgar á safnahelgi.is