Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sandgerðisskóli hlýtur viðurkenningu sem UNESCO-skóli

Sandgerðisskóli hefur formlega bæst í hóp UNESCO-skóla innan Reykjanes jarðvangs. Þar með hafa alls fimm skólar á Reykjanesi hlotið viðurkenningu sem UNESCO-skólar á síðustu misserum.

Stóru-Vogaskóli í Vogum var fyrstur til að hljóta viðurkenninguna vorið 2025, Háaleitisskóli á Ásbrú fylgdi þar fast á eftir í lok sumars og Leikskólinn Gimli í Reykjanesbæ fékk sína viðurkenningu í október sama ár. Fyrr á þessu ári bættist Fjölbrautaskóli Suðurnesja einnig í hópinn.

Metnaðarfull UNESCO-verkefni í Sandgerðisskóla

Þrátt fyrir að formleg viðurkenning hafi ekki borist fyrr en í lok apríl hefur Sandgerðisskóli þegar hrint af stað fjölbreyttum UNESCO-tengdum verkefnum og tekið verkefninu af miklum metnaði.

Meðal annars settu nemendur upp glæsilegt skólaleikrit þar sem sögunni Dýrabær (Animal Farm) var fléttað saman við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna á skapandi og eftirminnilegan hátt.

Nánar má lesa um verkefnið hér:
Glæsileg árshátíð yngri nemenda í Sandgerðisskóla

Reykjanes UNESCO jarðvangur styður við UNESCO-skóla

Af því tilefni afhenti Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjanes jarðvangi, nýjum UNESCO-skólum innan jarðvangsins bækurnar Reykjanes I og II ásamt öðru útgefnu efni sem getur nýst í verkefnavinnu um náttúru og menningu í nærumhverfinu.

Frá fyrsta kynningarfundi verkefnisins í september 2024 hafa um 18 leik-, grunn- og framhaldsskólar unnið að UNESCO-skólaumsóknum innan Reykjanes jarðvangs. Verkefnið hófst að frumkvæði Suðurnesjavettvangs og hefur verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjanes jarðvangi haldið utan um verkefnið, stutt við skólana og verið tengiliður við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Hvað er UNESCO-skólanetið?

UNESCO hefur starfrækt samstarfsnet skóla á alþjóðavísu frá árinu 1953 undir nafninu UNESCO Associated Schools Project Network (ASPnet). Skólarnir eru nú um 10.000 talsins í um 180 löndum og hafa skuldbundið sig til að vinna með þemu Sameinuðu þjóðanna og heimsmarkmiðin 17 um sjálfbæra þróun í daglegu skólastarfi.

Markmiðið með verkefninu hefur frá upphafi verið að styðja skóla við vinnu með heimsmarkmiðin og auka aðgengi að fjölbreyttum og skapandi verkefnum. Samhliða hefur skapast öflugur samvinnuvettvangur fyrir skólafólk þvert á skólastig og sveitarfélög auk þess sem tengsl skólanna við Reykjanes jarðvang hafa styrkst.

Nánar um UNESCO-skólanetið á Reykjanesi má lesa hér:
UNESCO-skólanetið stækkar á Reykjanesi

Innilegar hamingjuóskir til Sandgerðisskóla

Reykjanes jarðvangur og Markaðsstofa Reykjaness óska Sandgerðisskóla innilega til hamingju með viðurkenninguna og hlakka til að fylgjast með áframhaldandi öflugu starfi skólans á sviði sjálfbærni, menntunar og alþjóðasamstarfs.