Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sjálfbærnivika Reykjanes jarðvangs

Sjálfbærnivika verður haldin dagana 1.-7. Nóvember 2026 innan Reykjanes UNESCO Global Geopark. UNESCO skólateymið, sem samanstendur af fulltrúum frá Suðurnesjavettvangi, GeoCamp Iceland og Reykjanes jarðvangi, hefur ákveðið að gera vikuna að árlegum viðburði.

Sjálfbærnivikan hefur það markmið að vekja athygli á sjálfbærni og hvetja íbúa, skóla, fyrirtæki og stofnanir til að skoða hvað við getum sjálf gert til að stuðla að sjálfbærni í daglegu lífi. Þessi hugmynd tengist vinnu með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og teygir sig inn í skólastarf, minnir á samfélagslega ábyrgð og umhverfisvernd.

Vikan var fyrst haldin 25. september til 1. október 2025, samhliða alþjóðlegum fánadegi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, þar sem skólar og fyrirtæki innan jarðvangs drógu fánann að húni í upphafi vikunnar og gaf viðburðinum táknræna byrjun.

Í tengslum við vikuna hafa verið dregnar fram fjölbreyttar hugmyndir um verkefni og umræðu, s.s. um nægjusemi, matarsóun, samgöngur, sorp og flokkun, auðlindir og orkulæsi, þannig að þátttakendur geti skoðað sjálfbærni í heimabyggð frá ólíkum sjónarhornum.

Sjálfbærnivikan er opið tækifæri fyrir alla á Suðurnesjum – skóla, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklinga – til að leggja sitt af mörkum og sýna hvernig litlir sem stórir þættir geta stuðlað að sjálfbærari framtíð. Með því að sameina krafta daglegs lífs, skólastarfs og atvinnulífs skapa þátttakendur lifandi og áhrifaríka sjálfbærniviku ár hvert.

Frekari upplýsingar og hugmyndir að verkefnum má kynna sér hér.