Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Snjallsjónaukar efla vísindalæsi í grunnskólum Reykjanes jarðvangs

Allir ellefu grunnskólar innan Reykjanes jarðvangs fá nú snjallsjónauka að gjöf sem hluta af stærra fræðsluverkefni sem fór af stað í tengslum við almyrkvann á Reykjanesi 12. ágúst síðastliðinn. Markmiðið er að nýta þann mikla áhuga sem almyrkvinn vakti til að efla vísindalæsi og áhuga barna og ungmenna á náttúru, vísindum og undrum alheimsins.
Við afhendingu snjallsjónaukanna í ágúst s.l.
Við afhendingu snjallsjónaukanna í ágúst s.l.

Allir ellefu grunnskólar innan Reykjanes jarðvangs fá nú snjallsjónauka að gjöf sem hluta af stærra fræðsluverkefni sem fór af stað í tengslum við almyrkvann á Reykjanesi 12. ágúst síðastliðinn. Markmiðið er að nýta þann mikla áhuga sem almyrkvinn vakti til að efla vísindalæsi og áhuga barna og ungmenna á náttúru, vísindum og undrum alheimsins.

Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari afhenti nýverið ellefu snjallsjónauka sem nú verða afhentir grunnskólunum, einn í hvern skóla. Um er að ræða Seestar S30 Pro Total Solar Eclipse Edition snjallsjónauka sem eru einfaldir í notkun og bjóða upp á fjölbreytta möguleika í kennslu.

Sjónaukarnir nýtast til að skoða himingeiminn, svo sem sólina, tunglið og reikistjörnur, en einnig fugla, dýr og önnur fyrirbæri í náttúrunni. Hægt er að tengja sjónaukana við snjalltæki og taka bæði ljósmyndir og myndskeið, sem opnar möguleika á lifandi og skapandi vísindafræðslu þvert á námsgreinar.

Almyrkvinn sem kveikja að áframhaldandi fræðslu

Gjöfin er hluti af stærra fræðsluverkefni Reykjanes jarðvangs sem þróað var í tengslum við almyrkvann 2026. Frá upphafi var lögð áhersla á að nýta þennan einstaka náttúruviðburð ekki aðeins sem upplifun á einum degi heldur sem tækifæri til að vekja forvitni og áhuga barna á náttúru og vísindum.

Snjallsjónaukarnir eru því hugsaðir sem varanlegur hluti verkefnisins. Þeir verða áfram í skólunum og geta nýst nemendum og kennurum til athugana og verkefnavinnu um ókomin ár.

Verkefnið er að frumkvæði Reykjanes jarðvangs og er styrkt af Kadeco og atNorth, en stuðningur þeirra gerði kleift að koma sjónaukum til allra grunnskólanna. Sævar Helgi Bragason hefur jafnframt komið að verkefninu með ráðgjöf um val á búnaði og stuðningi við fræðsluhluta þess.

Fræðslan heldur áfram í vetur

Afhending sjónaukanna er ekki lok verkefnisins. Í haust verða haldin námskeið fyrir kennara þar sem farið verður yfir notkun sjónaukanna og hvernig hægt er að nýta þá í skólastarfi. Jafnframt er stefnt að því að útbúa og miðla námsefni sem styður kennara við að nýta búnaðinn í náttúru- og vísindafræðslu.

Með verkefninu vill Reykjanes jarðvangur byggja áfram á þeirri forvitni sem almyrkvinn vakti og skapa varanleg tækifæri fyrir börn á Suðurnesjum til að rannsaka nærumhverfið, himingeiminn og náttúruna með eigin augum.