Stjörnu-Sævar heimsótti alla grunnskóla á Suðurnesjum í aðdraganda almyrkvans
Undirbúningur fyrir almyrkvann 12. ágúst 2026 er í fullum gangi á Reykjanesi og á síðustu vikum hefur vísindamiðlarinn Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, heimsótt alla grunnskóla á Suðurnesjum með sérstaka fræðsludagskrá um almyrkvann.
Heimsóknirnar eru hluti af stærra fræðsluverkefni sem Reykjanes jarðvangur heldur utan um í samstarfi við GeoCamp Iceland. Markmið verkefnisins er að auka þekkingu barna og ungmenna á almyrkva, tryggja örugga áhorfsupplifun og vekja áhuga á vísindum, náttúru og stjörnufræði.
Í heimsóknunum fræddi Stjörnu-Sævar nemendur um hvernig almyrkvi verður til, hvað gerist þegar tunglið hylur sólina og hvernig hægt er að fylgjast með myrkvanum á öruggan hátt. Fræðslan var aðlöguð að aldri nemenda og náði til allra skólastiga.
Almyrkvi á sólu er einstakt náttúrufyrirbæri sem flestir fá aðeins tækifæri til að upplifa einu sinni á ævinni. Verkefnið nýtir þessa einstöku upplifun til að efla STEM-menntun og hvetja börn til að skoða nánar heim vísinda, tækni og náttúru.
Fræðsluverkefnið var unnið af Reykjanes jarðvangi og GeoCamp Iceland með styrk frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja og er hluti af umfangsmiklum undirbúningi fyrir almyrkvann sem verður sýnilegur á Reykjanesi 12. ágúst 2026.


