Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Styrkir úr Phoenix 4.0 – tækifæri til öflugra samstarfsverkefna í ferðaþjónustu

Nærandi samstarf er eitt af áhersluverkefnum Markaðsstofu Reykjaness á árunum 2025–2027 og miðar að því að efla skipulagt samstarf fyrirtækja, sveitarfélaga og stoðkerfis á Reykjanesi.

Sem hluti af þeirri vegferð styðjum við Íslenska ferðaklasann í Evrópuverkefninu Phoenix 4.0, þar sem nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki til samstarfsverkefna í ferðaþjónustu.

Allt að 25.000 evrur í styrk – án mótframlags

Phoenix 4.0 er evrópskt samstarfsverkefni sem veitir litlum og meðalstórum ferðaþjónustufyrirtækjum fjárhagslegan stuðning til að þróa raunhæf samstarfsverkefni sem nýtast í daglegum rekstri.

  • Hvert verkefni getur fengið allt að 25.000 evrur í styrk
  • Verkefnin standa yfir í 9 mánuði
  • Ekki er gerð krafa um mótframlag

Þetta skapar raunverulegt svigrúm til að prófa nýjar lausnir, þróa vörur, styrkja rekstur og auka samkeppnishæfni.

Hvers konar verkefni fá stuðning?

Phoenix 4.0 leggur áherslu á verkefni sem:

  • Auka seiglu og áhættustýringu fyrirtækja
  • Styðja við sjálfbærni og nærandi ferðaþjónustu
  • Draga úr áhrifum árstíðasveiflna og ofþenslu
  • Nýta stafrænar lausnir og gögn til betri ákvarðanatöku
  • Styrkja mannauð, þjálfun og stjórnunarhæfni
  • Efla aðgengi og inngildingu
  • Byggja upp markvissar vitundarvakningar um loftslagsmál og verndun menningar

Í meðfylgjandi leiðbeiningum verkefnisins eru ítarlegar skilgreiningar á þessum áherslum og fjölmörg hagnýt dæmi um möguleg samstarfsverkefni.

Dæmi um möguleg verkefni:

  • Sameiginleg þróun orkuskilvirkni og hringrásarlausna
  • Stafræn mælaborð til að greina gestaflæði og minnka álag
  • Vetrarvöruþróun til að jafna árstíðasveiflur
  • Sameiginleg vistvottun eða sjálfbærniráðgjöf
  • Þjálfun starfsfólks í sjálfbærni eða aðgengismálum
  • Sameiginleg markaðsátök fyrir ábyrgari ferðamennsku

Hvernig tengist þetta Nærandi samstarfi á Reykjanesi?

Markmið Nærandi samstarfs er að:

  • Formgera samstarf fyrirtækja á svæðinu
  • Styðja við sjálfbæra þróun og vöruþróun
  • Efla nýsköpun og samfélagslega ábyrgð
  • Byggja upp sterkari innviði fyrir atvinnulífið á Reykjanesi

Phoenix 4.0 fellur fullkomlega að þessum markmiðum og er tækifæri fyrir fyrirtæki á Reykjanesi að:

✔ vinna saman þvert á greinar
✔ tengja saman ferðaþjónustu, tækni, hönnun og sjálfbærni
✔ þróa lausnir sem styrkja svæðið til framtíðar

Skráning og frekari upplýsingar

Umsóknarsíða: https://www.phoenix4tourism.eu/funding-opportunities

Hægt er að hafa samband við:

  • Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur – asta.kristin@icelandtourism.is
  • Ólöfu Ýrr Atladóttur – olofyrr@icelandtourism.is

Einnig er hægt að bóka fund til að ræða hugmynd að samstarfsverkefni.

 

Við hvetjum fyrirtæki á Reykjanesi til að skoða tækifærið

Ef þið eruð með hugmynd sem þið hafið lengi viljað hrinda í framkvæmd – eða viljið þróa nýtt samstarf – þá er þetta kjörið tækifæri.

Markaðsstofa Reykjaness hvetur fyrirtæki á svæðinu til að taka þátt og nýta sér þennan styrk til að byggja upp sterkara, sjálfbærara og samkeppnishæfara Reykjanes.