Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Um 4.000 grunnskólabörn á Suðurnesjum fengu sólmyrkvagleraugu

Í aðdraganda almyrkvans sem verður sýnilegur á Íslandi þann 12. ágúst 2026 fengu um 4.000 grunnskólabörn á Suðurnesjum gefins sólmyrkvagleraugu við skólaslit.

Markmið verkefnisins er að tryggja að öll börn á svæðinu geti fylgst með almyrkvanum á öruggan hátt og tekið þátt í þessari einstöku upplifun. Almyrkvi á sólu er meðal sjaldgæfustu náttúrufyrirbæra sem fólk getur upplifað og mun Reykjanes vera einn besti staðurinn á landinu til að fylgjast með myrkvanum.

Reykjanes jarðvangur hafði umsjón með verkefninu og dreifingu gleraugnanna en sveitarfélögin Reykjanesbær, Suðurnesjabær, Grindavíkurbær og Vogar greiddu allan kostnað við kaupin.

Gleraugun voru fengin frá Sævari Helga Bragasyni, betur þekktum sem Stjörnu-Sævari, sem hefur um árabil unnið að miðlun stjörnufræði og vísinda til almennings.

Frekari upplýsingar um almyrkvann, öryggi við áhorf og sólmyrkvagleraugu má finna á solmyrkvi2026.is.

Reykjanes jarðvangur þakkar sveitarfélögunum fyrir stuðninginn og hlakkar til að sjá fólk á öllum aldri upplifa þennan sögulega dag í ágúst 2026.