Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Undirbúningur fyrir Almyrkvann 2026 hafinn á Reykjanesi

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur falið Markaðsstofu Reykjaness að leiða verkefni sem miðar að því að undirbúa svæðið heildstætt með áherslu á fræðslu, upplifun, öryggi og samfélagslega þátttöku.

Undirbúningur er hafinn á Reykjanesi fyrir þennan einstaka atburð – almyrkva sem verður sýnilegur þann 12. ágúst 2026. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur falið Markaðsstofu Reykjaness að leiða verkefni sem miðar að því að undirbúa svæðið heildstætt með áherslu á fræðslu, upplifun, öryggi og samfélagslega þátttöku.

Á fundi sveitarfélaganna í apríl var samþykkt að stofna sameiginlegan stýrihóp sveitarfélaga á Reykjanesi vegna almyrkva 2026. Í hópnum sitja nú fulltrúar frá öllum sveitarfélögum svæðisins – Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Vogum og Grindavík – auk fulltrúa frá Reykjanes jarðvangi og Almannavörnum. Markaðsstofa Reykjaness leiðir verkefnið fyrir hönd Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Verkefnið snýst ekki eingöngu um ferðaþjónustu heldur líka fræðslu og þátttöku samfélagsins í undirbúningi. Við viljum skapa upplifun sem nær bæði til gesta og heimamanna, með sterkum tengingum við náttúruna og vísindin.

Almyrkvi – sjaldgæfur og heillandi viðburður

Almyrkvi á sér stað þegar tunglið gengur fyrir sólina og varpar skugga á jörðina. Á Reykjanesi verður viðburðurinn sýnilegur í heild sinni, og búist er við að fjöldi gesta vilji fylgjast með þessari einstöku stjarnfræðilegu sjónarspili. Verkefnið felur því í sér mikla ábyrgð – bæði í skipulagi og upplýsingagjöf, en líka sem tækifæri til að efla sameiginlega vitund um náttúruna, vísindin og eigin samfélag.

Samfélagsverkefni með breiðri skírskotun

Verkefnið er liður í áhersluverkefni Sóknaráætlunar Suðurnesja um myrkurferðaþjónustu, en með almyrkvanum er einnig lögð áhersla á að virkja skóla og stofnanir í fræðslu, stuðla að góðri aðstöðu á áhorfssvæðum og vinna að viðbragðsáætlunum í samstarfi við lögreglu, björgunarsveitir og almannavarnir.

Fyrstu skref verkefnisins eru því að skilgreina svæðin sem henta til almyrkvaáhorfs, meta aðstöðuskilyrði, og hefja fræðslu inn í samfélagið. Verkefnið mun teygja sig yfir næstu mánuði og enda með viðburðinum sjálfum í ágúst 2026 – sem vonast er til að verði sameiginlegt samfélagslegt verkefni á Reykjanesi.

Næstu skref

Ferðaþjónustufyrirtæki mörg hver hafa nú þegar hafið undirbúning fyrir Almyrkvann og víða eru gistipláss uppbókuð. Á næstu vikum verða verkefni og hugmyndir sveitarfélaganna og stofnana á Suðurnesjum kortlögð, og sett fram drög að verk- og tímaplani í aðdraganda viðburðarins. Aðilar sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu verkefni með einhverjum hætti eru hvött til að setja sig í samband við Þuríði hjá Markaðsstofu Reykjaness, thura@visitreykjanes.is.

Frekari upplýsingar um almyrkvann má finna á vefnum eclipse2026.is