Unnið að bættu öryggi við Valahnúk
28.08.2026
Um þessar mundir er unnið að því að bæta öryggi og merkingar við Valahnúk á Reykjanesi. Settar verða upp skýrari merkingar sem vekja athygli á hættum á svæðinu og leiðbeina gestum um örugga umgengni.
Valahnúkur er vinsæll áningarstaður en þar eru brattir sjávarhamrar, sprungur í berginu og hætta á hruni, sérstaklega nærri brúnum. Mikilvægt er að gestir fylgi merkingum og sýni sérstaka aðgát þegar veður er vont.
Gestir og ferðaþjónustuaðilar eru beðnir um að sýna framkvæmdunum og tímabundnum merkingum tillitssemi á meðan vinnan stendur yfir. Markmiðið er að gera heimsóknir á svæðið öruggari.