Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Gönguleið D opin - Merardalaleið

Opnað hefur verið inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi

Tilkynning frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Eldgos hófst við fjallið Litla Hrút á Reykjanesskaga klukkan 16:40 í gær.

Opnað hefur verið inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi en ekki frá öðrum vegum eða vegaslóðum.

Leið upp að gosstöðvunum er það sem viðbragðsaðilar kalla Meradalaleið, sjá gönguleiðir hér. Veðurstofa Íslands mun gefa út uppfært hættukort af svæðinu eftir klukkutíma eða svo. Gönguleiðin er um 20 km fram og til baka og hentar því ekki öllum.

Mikilvægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega. Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar. Hætta eykst þegar vind lægir. Þá geta lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar. Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum.

Göngufólk klæði sig eftir veðri, nesti sig og gleymi ekki að hafa næga hleðslu á farsímum. Ekki er tryggt öryggi farsíma á svæðinu.

Bílum skal lagt á merktum stæðum við Suðurstrandarveg en ekki í vegkanti Suðurstrandarvegar.

Þeir gangi að gosstöðvum sem treysta sér til þess, vel búnir og nestaðir. Fylgist með vindátt og fréttaflutningi.

Gagnlegir hlekkir og upplýsingar inn á

Þá má benda á helstu fjölmiðla sem hafa verið með mjög upplýsandi og með góðan fréttaflutning af gosinu.

Akstur utan vega er bannaður.

Ferðamenn fari að fyrirmælum viðbragðsaðila. Fjallið Keilir er inn á merktu hættusvæði.

Spá veðurvaktar um gasdreifingu

Norðlæg átt, 5-10 m/s, 8-13 á morgun. Gasmengunin berst því til suðurs og gæti hennar orðið vart í m.a. Grindavík og á Suðurstandarvegi.
Mun hægari vindur um tíma í nótt. Gasmengun gæti dreifst víða kringum upptakasvæðið í fyrramálið.