Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

SMS-skilaboð vegna jarðskjálfta eru send út á gesti og íbúa á Reykjanesi

Almannavarnir og lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafa ákveðið að virkja SMS-skilaboð sem verða send til fólks sem fer inn á fyrirfram skilgreint svæði á Reykjanesskaganum vegna jarðskjálftahrinunnar sem hófst að kvöldi 4. júlí sl.
Yfirlitsmynd yfir Nátthaga. Mynd: H0rdur
Yfirlitsmynd yfir Nátthaga. Mynd: H0rdur
 
Almannavarnir og lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafa ákveðið að virkja SMS-skilaboð sem eru send til fólks sem fer inn á fyrirfram skilgreint svæði á Reykjanesskaganum vegna jarðskjálftahrinunnar sem hófst að kvöldi 4. júlí sl.
 
Ástæða skilaboðanna er að fá gesti og íbúa svæðisins til að hafa varann á þegar ferðast er um svæðið vegna grjóthruns svæðinu og eins vegna þess að eldgos gæti hafist með litlum fyrirvara. Komi til eldgoss verður textaskilaboðum breytt í beina aðvörun til þeirra sem eru á umræddu svæði.
 
Skilaboðin eru einungis send á ensku, þar sem verið er að beina skilaboðunum til erlendra ferðamanna sem hefur ekki jafn gott aðgengi að upplýsingum vegna jarðskjálftahrinunnar sem hófst í gærkvöldi. Ekki er víst að allir gesti átti sig á þeim aðstæðum sem nú eru á svæðinu, ástæðu skjálftanna eða hvernig bregðast eigi við, við þessar aðstæður. Hjálpumst að við að upplýsa gestina okkar.
 
Ekki er hægt að útiloka að SMS-skilaboðin berist til fólks aðeins utan við skilgreint svæði og er almenningur beðinn um að hafa það í huga.
 
Skilaboðin sem send eru út eru eftirfarandi: 
Police: Reykjanes peninsula – earthquakes! Increased seismic activity in the area. Stay away from slopes and cliffs due to danger of rockfall and landslides. A volcanic eruption might start with short notice.

 

Fyrir frekari upplýsingar er vert að fylgjast með upplýsingum frá Almannavörnum, Lögreglunni á Suðurnesjum og Safetravel

Allar upplýsingar um hvernig best er að ferðast um svæðið má finna hér inn á vefnum okkar, undir Allt um eldgosið. Þar er jafnframt hægt að finna svör við mörgum af þeim spurningum sem upp koma frá gestunum okkar við þessar aðstæður.