Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

AC/DC rokkmessa

16. október kl. 20:00-22:00

Upplýsingar um verð

7.900 kr.

AC/DC, hinni goðsagnakenndu hljómsveit, sem á mest seldu rokkplötu allra tíma, Back In Black, og hátt í 200 milljón plötur seldar um heim allan verður gert hátt undir á Rokkmessu í Hljómahöll þann 16. október 2026.

 

Á rokkmessunni fá aðdáendur sveitarinnar að heyra lög eins og Back in black, Thunderstruck, You shook me all night long, Highway to hell, Hells bells, Let there be rock og fleiri stórsmelli. Það er valinn maður í hverju rúmi í þessari mögnuðu messu en hljómsveitina skipa þaulvanir og þéttir íslenskir rokkarar sem hafa gert garðinn frægan í ekki ómerkari sveitum eins og HAM, DIMMA, VINTAGE CARAVAN og ENSÍMI.

 

ROKKMESSU SVEITIN:

Söngur: Stebbi Jak

Söngur: Dagur Sig

Gítar / bakrödd: Óskar Logi Ágústsson

Gítar / bakrödd: Franz Gunnarsson

Bassi / bakrödd: Flosi Þorgeirsson

Trommur / bakrödd: Stefán Ari Stefánsson

GPS punktar

N63° 59' 23.625" W22° 33' 0.947"

Staðsetning

Hljómahöll

Sími