Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hvalreki hittir Hallgrím

8. mars kl. 17:00-18:00

Upplýsingar um verð

3900

Hvalreki og Hallgrímur Pétursson

Tríóið Hvalreki flytur texta Hallgríms Péturssonar við þjóðlög í eigin útsetningum.

Fyrir tveimur árum fluttu þau veraldlega texta Hallgríms en nú snúa þau sér að nokkrum Passíusálmur og öðrum sálmum.

Hvalreka skipa þau Kjartan Guðnason slagverk, Kjartan Valdemarsson píanó og Magnea Tómasdóttir söngur. Tríóið hefur starfað saman um árabil og hefur skapað sinn persónulega hljóðheim. Hér gefa textar Hallgríms tóninn og tíðarandi 17. og 21. aldar mætast.

Eftir tónleika verður Kaffi Gola opin og boðið verður upp á kaffi og konfekt en einnig verður hægt að kaupa sér fiski- og grænmetissúpu.

Aðgangseyrir er 3.900.- ókeypis fyrir 18 ára og yngri.

Þessir tónleikar eru styrktir af Uppbyggingarsjóði.

GPS punktar

N63° 59' 23.700" W22° 44' 9.197"

Staðsetning

Hvalsneneskirkja

Sími