Upplýsingar um verð
3500 fullorðinn 1000 börn til 16 ára
Sunnudaginn 15. nóvember klukkan 14 og 16 verður Lappalúðakvæði (Lappa, ekki Leppa!) séra Hallgríms Péturssonar flutt í Hvalsneskirkju í Suðurnesjabæ.
Við þekkjum Hallgrím Pétursson fyrst og fremst sem sálmaskáld en hann orti einnig fjölmörg veraldleg kvæði sem eru minna þekkt.
Þeirra á meðal er Lappalúðakvæði sem hann orti meðan hann var prestur á Hvalsnesi.
Í Lappalúðakvæði á Hallgrímur samtal við Lappalúða sem falast eftir börnunum hans fyrir Grýlu sem liggur farlama uppi í helli.
Í Lappalúðakvæði á Hallgrímur samtal við Lappalúða sem falast eftir börnunum hans fyrir Grýlu sem liggur farlama uppi í helli.
Auk Lappalúðakvæðisins verða einnig flutt lög við nokkuð af öðrum veraldlegum kveðskap Hallgríms.
Hörður Bragason hefur samið tónlist við Lappalúðakvæðið sem er 53 vers.
Flytjendur auk Harðar í hlutverki Hallgríms eru Pétur Eggerz sem túlkar Lappalúða og Magnea Tómasdóttir sem syngur hlutverk Guðríðar Símonardóttur, eiginkonu Hallgríms.
Flytjendur auk Harðar í hlutverki Hallgríms eru Pétur Eggerz sem túlkar Lappalúða og Magnea Tómasdóttir sem syngur hlutverk Guðríðar Símonardóttur, eiginkonu Hallgríms.
Börn úr grunn og tónlistarskóla Sandgerðis koma fram sem sautjándu aldar börn á Suðurnesjum.
Steinunn Eldflaug, Katrín Oktavía, Steingrímur Starri og Bragi Zar eru börn Hallgríms og Guðríðar.
Pétur Eggerz Pétursson er Skröggur, sem Lappalúði eignaðist áður en hann kynntist eiginkonu sinni og Iðunn Gígja Kristjánsdóttir er Jólakötturinn.
Pétur Eggerz Pétursson er Skröggur, sem Lappalúði eignaðist áður en hann kynntist eiginkonu sinni og Iðunn Gígja Kristjánsdóttir er Jólakötturinn.
Guðmundur Sigurðsson leikur á orgel kirkjunnar, Sighvatur Ómar Kristinsson (Músíkvatur) leikur á bassa og Eiríkur Stephensen spilar á slagverk, klarinet og þeramín. Á básúnu leikur Ingibjörg Azíma.
Miðaverð er 3.500.- Börn 16 ára og yngri 1000.-
Tónleikarnir eru styrktir af Menningarsjóði Suðurnesjabæjar, Hvalsneskirkju og Kaffi Golu.
Sýna minna