Upplýsingar um verð
Það er okkur sannur heiður að segja frá því að bandaríski tónlistarmaðurinn Louis Cole kemur fram á tónleikum í Hljómahöll þann 13. ágúst næstkomandi ásamt stórsveit - daginn eftir almyrkvann 2026 sem verður sýnilegur á Reykjanesskaganum. Louis kom síðast til landsins árið 2021 og vakti þá athygli fyrir einstaklega skemmtilega tónleika.
Louis Cole kemur frá Los Angeles og er mikið hæfileikabúnt. Hann er álitinn einn af framúrstefnulegustu fönk trommurum heims í dag. Markmið hans með tónlist sinni er að tjá djúpar tilfinningar sínar en óhætt er að segja að tónlist hans sé mjög tilfinningarík. Louis Cole hefur gert ótal myndbönd við tónlist sína sem hafa orðið gríðarlega vinsæl á Youtube.
Frá síðustu heimsókn sinni til Íslands hefur Louis Cole hlotið tvær Grammy-tilnefningar. Árið 2023 var hann tilnefndur í flokki Best Arrangement, Instruments and Vocals fyrir lagið sitt Let It Happen og árið 2024 hlaut plata hans Quality Over Opinion tilnefningu í flokki Best Alternative Jazz Album á Grammy-verðlaunum.