Upplýsingar um verð
Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin.
Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu og þrjú ár og þykir mörgum
ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu.
Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari, SigurðurHalldórsson sellóleikari og gestur er Gillian Haworth óbóleikari.
Á dagskránni eru þrjú glæsileg kammerverk eftir Mozart en það eru Kvartett fyrir óbó og strengi í F Dúr kv 370, Kvartett fyrir strengi í C-Dúr kv.465 og Kvartett fyrir klarinettu og strengi í Es Dúr kv 380.
Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,” Í dag er glatt í döprum hjörtum” eftir Mozart.
Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og er einungis lýst með kertaljósum.
Aðgangseyrir er kr. 3.500 og frítt inn fyrir börn. Miðasala við innganginn.
Eftir tónleika er tónleikagestum boðið í kakó og piparkökur í Kaffi Golu.
Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.