Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Tónleikaveisla Vor á Vatnsnesi

16. maí kl. 20:00-23:00

Upplýsingar um verð

Frítt inn fyrir alla

Afmælishátíð Hótel Keflavík í samstarfi við Polar Beat:

🌼VOR Á VATNSNESI🌼
Tónlistarhátíð helguð Bítlabænum - vöggu íslenska bítsins -

Laugardaginn 16. maí 2026 kl. 20:00–22:40
Við Vatnsneshúsið, Vatnsnesvegi 8, Keflavík
Frítt inn fyrir alla 🥰

Á þessari einstöku tónlistarhátíð verður saga Bítlabæjarins Keflavíkur heiðruð með lögum og minningum um nokkrar af áhrifamestu röddum og hljómsveitum íslenskrar tónlistarsögu.

Kvöldið verður tileinkað Óðmönnum, Hljómum, Magnúsi og Jóhanni og systkinunum Ellý og Vilhjálmi Vilhjálms. Þetta eru nöfn sem mótuðu íslenska dægurtónlist, komu Suðurnesjum á tónlistarkortið og skildu eftir sig lög sem hafa lifað með þjóðinni í áratugi.

Kvöldið tengir sumsé fortíð og nútíð þegar Valdimar og Ásgeir úr hljómsveitinni Valdimar mæta og setja punktinn yfir i - ið undir lok tónleikanna. Loks klárum við þetta með stæl með fallegri flugeldasýningu!

Á sviðinu koma saman goðsagnir, heiðursgestir og nýjar raddir sem halda arfinum lifandi. Þetta verður kvöld fullt af sögum, tilfinningum, gleði og tónlist sem á djúpar rætur í hjarta Suðurnesja.

DAGSKRÁIN:

🎶 ÓÐMENN
Shady Owens söngkonan eina og sanna
Magnús Kjartansson Hammond organisti
Finnur Torfi Stefánsson gítarleikari
Sebastían Pétursson Östlund trommuleikari
Sérstakir heiðursgestir tónleikanna verða Pétur Östlund og ..... Týndi sonurinn! Í stað Jóhanns G. Jóhannssonar sáluga stígur nú í fyrsta skipti á svið með Óðmönnum nýuppgötvaður sonur hans - listamaðurinn Id. - öðru nafniu Ívar Davíð !

🎶 SÖNGVAR HLJÓMA
Erlingur Björnsson gítarleikari
Karl Hermannsson söngvari
Eggert Kristinssoon trommuleikari
Júlíus Guðmundsson Rúnars Júlíussonar bassaleikari
Baldur Guðmundsson Rúnars Júlíussonar hljómborðsleikari

🎶 MAGNÚS og JÓHANN
Söngvaskáldin einu, sönnu og sígildu!

🎶 ELLÝ og VILHJÁLMUR
Suðurnesjasystkinin ástsælu í tõfrandi flutningi Sigríðar Thorlacius, Sigurðar Guðmundssonar og Góss hópsins.

🎶 VALDIMAR og ÁSGEIR
Keflavíkingarnir þeir Ásgeir og Valdimar stíga einir á svið og flytja sín þekktustu lög á sínum heimaslóðum.

🎆 FLUGELDASÝNING
Flugeldasýning kl 22:40 á vegum Björgunarsveitarinnar Suðurnes

GPS punktar

N64° 0' 2.890" W22° 32' 44.157"

Staðsetning

Vatnsnesvegur 8, 230 Keflavík

Sími