Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

R.H.B. - Grétar Matt - Duld

8. október kl. 20:00-22:00

Upplýsingar um verð

3000 kr.

R.H.B., Grétar Matt og Duld blása til tónleika í Bergi í Hljómahöll fimmtudagskvöldið 8. október. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og er miðaverð kr. 3.000.

Hljómsveitin R.H.B. var stofnuð fyrir um 5 árum síðan og spilar kraftmikið gítarrokk. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu breiðskífu í fyrra og vinnur nú að sinni annarri breiðskífu sem væntanleg er fyrri part ársins 2027. Flutt verða lög af væntanlegri plötu í bland við annað efni. Sérstakur gestur mun koma fram með sveitinni. www.rolfhausbentnerband.is

Grétar Matt, eða Greddi Rokk eins og margir kalla hann, gaf í fyrra út sína fyrstu breiðskífu sem ber heitið Unbreakable. Er hana að finna á öllum helstu streymisveitum sem og á vínyl. Hann vinnur nú að annarri breiðskífu sinni.

Duld er listamannsnafn tónlistarkonunnar Birtu Rósar Sigurjónsdóttur sem hefur marga fjöruna sopið í tónlistarheiminum, allt frá rokki yfir í jazz. Með henni spilar hljómsveitin Korter í Prog. Þá hljómsveit skipa ásamt henni þeir Sveinbjörn Ólafsson á gítar og Valur Ingólfsson á trommur.

GPS punktar

N63° 59' 23.625" W22° 33' 0.947"

Staðsetning

Hljómahöll

Sími