Upplifðu sólmyrkvavikuna á Hótel KEF
Dagana 11.–15. ágúst verður sólmyrkvanum fagnað á Hótel KEF með góðum mat, frískandi drykkjum, slökun og sérstökum tilboðum.
Hótel KEF er í hjarta Keflavíkur, aðeins fimm mínútna akstur frá Keflavíkurflugvelli og í nokkurra mínútna fjarlægð frá viðburðum sólmyrkvadagsins í Reykjanesbæ. Hótelið er því tilvalinn viðkomustaður fyrir þá sem ætla að upplifa almyrkvann og allt það besta sem Reykjanes hefur upp á að bjóða.
Hvort sem þú vilt byrja daginn á veglegum morgunverði, slaka á í KEF SPA & Fitness eða setjast niður yfir góðum kvöldverði og kokteil að loknum eftirminnilegum degi tekur Hótel KEF vel á móti þér.
Sólmyrkvadekur í KEF SPA & Fitness
Byrjaðu daginn í kyrrðinni í KEF SPA & Fitness. Dagana 11.–15. ágúst verður 50% afsláttur af aðgangi frá kl. 06:00–15:00.
Í heilsulindinni er fjölbreytt aðstaða til slökunar, meðal annars heitur pottur, eimbað, þurrgufa, innrauður klefi, snjóherbergi, kaldur pottur og notalegt slökunarsvæði.
Eftir heimsóknina ertu endurnærður og tilbúinn að halda út í daginn, skoða náttúru Reykjaness og upplifa einstaka stemningu sólmyrkvadagsins.
Bókaðu þig hér á www.kefspa.is
Góðan daginn KEF
Þú þarft ekki að gista á Hótel KEF til að njóta morgunverðarins. Veglegt morgunverðarhlaðborð hótelsins er opið öllum, alla daga frá kl. 05:00–10:00.
Dagana 11.–15. ágúst fá gestir sem heimsækja Reykjanes í tilefni sólmyrkvans 20% afslátt af morgunverðarhlaðborðinu.
Komdu við, njóttu góðs morgunverðar og safnaðu orku fyrir ævintýri dagsins.
Sérstakur sólmyrkvamatseðill á KEF Restaurant
KEF Restaurant býður upp á sérstakan tveggja rétta sólmyrkvamatseðil dagana 11.–15. ágúst. Á matseðlinum eru safaríkar lambalundir og KEF-tíramísú í eftirrétt. Verðið er aðeins 9.900 kr. á mann.
Bókaðu borðið þitt á www.kefrestaurant.is.
Eldhús KEF Restaurant verður opið til kl. 22:30 og Diamond Lounge til kl. 23:30 alla dagana. Það verður því nægur tími til að setjast niður, njóta góðs matar og ræða upplifun dagsins, jafnvel þótt ævintýrin standi fram eftir kvöldi.
Fimm stjörnu kokteilar á Diamond Lounge
Á Diamond Lounge verður boðið upp á sérstakan drykkjaseðil með sumarlegum kokteilum og áfengislausum valkostum:
Peach Please – 3.100 kr.
Ástaraldingín, ferskjulíkjör, vanillusíróp og sódavatn.
Starburst – 2.700 kr.
Bleikt gin, jarðarber og vanillusíróp.
Starburst 0% – 1.900 kr.
Everleaf Mountain, jarðarber og vanillusíróp.
Hugo Spritz – 2.900 kr.
Ylliblómalíkjör, freyðivín og sódavatn.
Hugo Spritz 0% – 1.900 kr.
Áfengislaus ylliblómalíkjör, áfengislaust freyðivín og sódavatn.
Komdu þér vel fyrir og skálaðu fyrir einstökum degi í sólmyrkvastemningu á Diamond Lounge.
Tilboð á völdum gjafabréfum
Í tilefni sólmyrkvavikunnar verður einnig afsláttur af völdum gjafabréfum Hótel KEF.
Gjafabréfin fást í KEF Shop á www.kef.is/shop og í móttöku Hótel KEF. Þar má finna gjafir sem tengjast gistingu, góðum mat og slökun hjá KEF – eða eitthvað notalegt fyrir sjálfan sig.
Sólmyrkvagleraugu fyrir gesti okkar
Dagana 11.–12. ágúst mun Hótel KEF gefa gestum sínum frí sólmyrkvagleraugu á meðan birgðir endast.
Gleraugun verða í boði fyrir gesti Hótel KEF, KEF SPA & Fitness, KEF Restaurant, KEF Café og Diamond Lounge, svo þeir geti notið þessa einstaka viðburðar á öruggan hátt. Við mælum með að gestir nálgist gleraugun tímanlega þar sem takmarkað magn verður í boði.