Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Lög Leonard Cohen: Í flutningi Daníels Hjálmtýssonar

29. maí kl. 20:00-21:30

Upplýsingar um verð

3.990
Daníel Hjálmtýsson kemur sér fyrir í Hvalsneskirkju í Suðurnesjabæ að kvöldi uppstignardags 29. maí nk. og flytur lög Leonard Cohen.
 
Uppselt var á síðustu tónleika Daníels í kirkjunni árið 2022 og komust færri að en vildi en Daníel hefur undanfarinn áratug fyllt kirkjur og krár víðsvegar um land og flutt efni Cohen í ýmsum formum og gerðum.
 
Daníel er nýlentur heima á Íslandi eftir tónleikaferðalag um Bretlandseyjar ásamt hinum breska Duke Garwood og undirbýr útgáfu sinnar annarrar breiðskífu, sem væntanleg er síðar á þessu ári.
 
Miðasala er hafin inn á Tix.is
Tónleikar hefjast stundvíslega kl. 20.00
 
Frekari upplýsingar um listamanninn og tónleikana má finna inn á Facebookviðburðinum

GPS punktar

N63° 59' 28.212" W22° 44' 6.963"

Staðsetning

Hvalsneskirkja