Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Uppfært hættumat við gosstöðvarnar

Veðurstofan hefur gefið út uppfært hættumat fyrir gosstöðvarnar við Litla Hrút
Uppfært hættumat af gossvæðinu
Uppfært hættumat af gossvæðinu

Veðurstofan hefur uppfært hættumatskortið fyrir gosstöðvarnar við Litla-Hrút.

Mikilvægt er að hafa í huga að enn er hætta nærri gossvæðinu. Hafið varann á og fylgið fyrirmælum. 

  • Mikill hiti leynist í nýja hrauninu.
  • Sums staðar er aðeins þunn skel yfir annars funheitu og óstorknuðu hrauni.
  • Jaðrar nýja hraunsins eru óstöðugir og úr þeim geta fallið stóri hraunmolar.
  • Gas sem sleppur úr hrauninu getur safnast í dældir.
  • Í kjölfar umbrotanna sem hafa átt sér stað, leynast sprungur á svæðinu sem skapa hættu.

Sjá upplýsingar á vef Veðurstofunnar

Fara á upplýsingasíðu fyrir gönguleiðir og bílastæði