Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna frestað

Í ljósi aðstæðna og vegna breytinga á sóttvarnarreglum hefur verið ákveðið að fresta Mannamóti Markaðsstofa landshlutanna til 24. mars 2022.

Í ljósi aðstæðna og vegna breytinga á sóttvarnarreglum hefur verið ákveðið að fresta Mannamóti Markaðsstofa landshlutanna til 24. mars 2022.

Ferðakaupstefnuna stóð til að halda í janúar eins og venjan er, nánar tiltekið þann 20. janúar en í ljósi aðstæðna hefur nú verið ákveðið að fresta henni eins og áður segir.

Viðburðurinn verður því haldinn í Kórnum í Kópavogi, frá 12-17 þann 24. mars næstkomandi.

Skráningar:
Skráningar sýnenda munu halda sér og sjálfkrafa færast yfir á nýjan viðburð. Þeir sem vilja gera breytingar á sinni skráningu er velkomið að gera það og er bent á að hafa samband við Markaðsstofu Reykjaness - info@visitreykjanes.is eða í síma 420 3288.

Þeir sem hafa skráð sig sem gesti eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig að nýju, ætli þeir að mæta þann 24. mars.