Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Öll met slegin á Mannamóti markaðsstofanna

Öll met voru slegin á frábærum degi í Kórnum í Kópavogi þar sem 800 gestir ráku inn nefið og kynntu sér ferðaþjónustu á landsbyggðinni hjá 270 sýnendum. Aukningin sem nemur um 30% frá því í fyrra.

Ekki hafa fleiri fyrirtæki af Reykjanesi mætt til leiks á Mannamót og hefur viðburðurinn aldrei verið glæsilegri og íburðarmeiri. Öll met voru slegin á frábærum degi í Kórnum í Kópavogi þar sem 800 gestir ráku inn nefið og kynntu sér ferðaþjónustu á landsbyggðinni hjá 270 sýnendum. Aukningin sem nemur um 30% frá því í fyrra. Starfsfólk Markaðsstofu Reykjaness hefur unnið ötullega að skipulagi Mannamóts undanfarna mánuði ásamt markaðsstofunum um allt land. Frábært samstarf sem sífellt er að styrkjast.

Mannamót er mikilvægur vettvangur til að sýna þann kraft sem landsbyggðarfyrirtæki í ferðaþjónustu búa yfir og þá fjölbreyttu flóru þjónustu sem boðið er uppá um allt land. 

Þau fyrirtæki sem voru fulltrúar Reykjaness voru 14 talsins og vonandi verða þau enn fleiri að ári.

Okkar fulltrúar 2019:

Urta Islandica ehf. 

Whale Watching Reykjanes

Eldey Airport Hotel

Veitingahúsið Vitinn

Röstin

Lighthouse-Inn

Fjórhjólaævintýri ehf

Rokksafn Íslands

Bus4u Iceland ehf

BB Hótel, Keflavík Airport

Hotel Service KEF Airport ehf

Duus Safnahús

Reykjanes Unesco Global Geopark

Geo Hotel

 

 


 

 


 

 

Lighthouse-Inn