Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Reykjanes Geopark skilar áfangaskýrslu til Global Geoparks Network

Reykjanes Geopark hefur hefur síðan árið 2012 unnið að aðild að alþjóðlegum samtökum sem nefnast Global Geoparks Network.
Valahnúkur, Valahnúkamöl og Reykjanesviti
Valahnúkur, Valahnúkamöl og Reykjanesviti

Reykjanes Geopark hefur hefur síðan árið 2012 unnið að aðild að alþjóðlegum samtökum sem nefnast Global Geoparks Network. Samtökin eru samstarfsvettvangur Geoparka og eru þau studd af UNESCO, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna. Frá því umsókn var send inn í nóvember 2012 hafa sérfræðingar frá samtökunum m.a. heimsótt Reykjanesið, Reykjanes Geopark hefur verið kynntur fyrir öðrum Geopörkum auk þess sem sérstök áhersla hefur verið lögð á að auka sýnileika Geoparksins á svæðinu, einfalda stjórnsýslu og unnið að gerð fræðsluefnis um sérstöðu svæðsins.

Stjórn Reykjanes Geopark skilaði í vikunni öllum þeim gögnum sem samtökin óskuðu eftir vegna umsóknarinnar. Umsóknin verður tekin fyrir á fundi þeirra í Rokua Geopark í Finnlandi í byrjun september. Þá mun skýrast hvort að Reykjanes Geopark fái þá vottun sem unnið hefur verið að undanfarin þrjú ár.

Í áfangaskýrslunni er svarað spurningum og ábendingum sem sérstaklega var beint til Reykjanes Geopark í lok árs 2013. Meðal þess sem unnið hefur verið að á þessum tíma er:

  • Sérstök áhersla er lögð á Mið-Atlantshafshrygginn, flekaskilin og afleiðingar þess að þau koma á land á Reykjanesi
  • Stjórnunaráætlun fyrir Reykjanes Geopark
  • Ný Gestastofa í Duushúsum í Reykjanesbæ
  • Aukinn sýnileiki Geoparksins í markaðefni fyrir svæðið
  • Innkomuhlið við Reykjanesbraut, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Krýuvíkurveg og Suðurstrandarveg
  • Reglulegar uppfærslur á Facebook-síðu með um 3.000 aðdáendur
  • Geopark vikur í maí/júní
  • Útgáfa barnabókar fyrir 3-8 ára um Reykjanesskagann
  • Námskeið og fyrirlestrar um sérstöðu svæðisins
  • Stofnun tveggja fagráða, um fræðslu- og rannsóknir og markaðsmál
  • Skilgreindir hafa verið 55 áhugaverðir staðir út frá jarðvísindum, náttúrufræðum eða menningararfleið
  • Flestir áðurnefndara staða eru verndaðir en unnið verður áfram að vernd annarra staða á listanum
  • Til stendur að gera marga þessara staða aðgengilega á næstunni
  • Unnið hefur verið að deiliskipulagi fyrir Brimketil og nágrenni Reykjanesvita með það að markmiði að bæta aðstöðu fyrir íbúa á svæðinu og ferðamenn til fræðslu og útivistar
  • Stikaðar hafa verið 3 nýjar gönguleiðir á Reykjanesi og sett verða upp 21 fræðsluskilti í ár á áhugaverðum stöðum
  • Merkingar við Brú milli heimsálfa hafa verið endurnýjaðar
  • Unnið hefur verið markvisst að tengja rekstararðila í ferðaþjónustu sem áhuga hafa við Geoparkinn
  • Reykjanes Geopark er aðili að tveimur alþjóðlegum verkefnum, GEOfood sem snýr að matarmenningu í Geopörkum og Drifting Apart sem snýr að myndum Atlantshafsins og sameiginlegri arfleið Geoparka á norðurslóðum

Reykjanes Geopark nær yfir allt land sveitarfélaganna Grindavíkurbæjar, Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Sveitarfélagsins Voga. Geoparkinn er samstarfsverkefni þessara sveitarfélaga og sex hagsmunaðila, þ.e. Ferðamálasamtaka Suðurnesja, Bláa lónsins, HS Orku, Keilis - miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs, Þekkingarseturs Suðurnesja auk Heklunnar - atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.

Áfangaskýrsluna má lesa hér