Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Reykjanes leiðir útgáfu bókar um norræna jarðvanga - Allir jarðvangar Evrópu hittust í Þýskalandi

Frá vinstri: Daníel Einarsson forstöðumaður Reykjanes Geopark og Þuríður Aradóttir Braun forstöðumað…
Frá vinstri: Daníel Einarsson forstöðumaður Reykjanes Geopark og Þuríður Aradóttir Braun forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness, ásamt fulltrúum Katla Geopark

Fulltrúar Reykjanes Unesco Global Geopark og Markaðsstofu Reykjaness sóttu í síðustu viku alþjóðlega ráðstefnu í Aalen í Þýskalandi þar sem komu saman fulltrúar frá  70 jarðvöngum í Evrópu. Jarðvangarnir koma saman til þess að fara yfir sameiginleg verkefni og huga að framtíðarþróun þeirra.

„Fundurinn var góður vettvangur fyrir mig til þess að kynnast hugmyndafræðinni og starfinu betur. Einnig til þess að mynda tengsl við forsvarsmenn annara jarðvanga, sem er mikilvægur hluti starfs jarðvanga. Þarna verða til samstarfsverkefni og hugmyndir sem efla stöðu og starf jarðvanganna,“ segir Daníel Einarsson forstöðumaður Reykjanes Unesco Global Geopark.

Norræn nefnd jarðvanga kom þarna saman en Daníel fer með forystu þess hóps sem stefnir að útgáfu bókar um jarðvanga á Norðurlöndunum í sumar.