Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Green Footprint hlaut styrk úr Erasmus+ – Visit Reykjanes leiðir verkefnið

Markaðsstofa Reykjaness (Visit Reykjanes) hefur hlotið styrk úr Erasmus+ fyrir smærra samstarfsverkefnið Green Footprint – Preparing Youth for Sustainable and Regenerative Travel Practices.
Gönguleiðin að Keili. Ljósmyndari: Þráinn Kolbeinsson
Gönguleiðin að Keili. Ljósmyndari: Þráinn Kolbeinsson

Markaðsstofa Reykjaness (Visit Reykjanes) hefur hlotið styrk úr Erasmus+ fyrir smærra samstarfsverkefnið Green Footprint – Preparing Youth for Sustainable and Regenerative Travel Practices.

Verkefnið hófst fyrr á árinu og stendur fram í júlí 2027. Það er unnið í samstarfi við CABILDO INSULAR DE LANZAROTE á Spáni og Galileo.it S.r.l. á Ítalíu, styrkt um 60.000 EUR af Erasmus+ KA210-YOU.

Ungmennaferðir sem skapa jákvæð áhrif

Ungmennaskipti og námsferðir eru mikilvægur hluti af evrópsku samstarfi og menntun. Á sama tíma geta stórir hópar haft áhrif á viðkvæm svæði ef undirbúningur er ekki nægur. Þetta á sérstaklega við um svæði eins og Reykjanes, þar sem náttúruvá, jarðhræringar og aukin ásókn ferðamanna kalla á ábyrgð og skýra umgjörð.

Green Footprint miðar að því að undirbúa ungt fólk, kennara og skipuleggjendur ferða betur fyrir ábyrgar og nærandi ferðavenjur. Áherslan er ekki aðeins á að draga úr neikvæðum áhrifum heldur að skapa jákvæð áhrif – að ungmenni og gestir geti lagt sitt af mörkum til þeirra samfélaga sem þau heimsækja.

Að hverju verður unnið?

Í verkefninu verða þróuð og prófuð:

  • Stutt og aðgengileg fræðslumyndbönd fyrir ungt fólk um sjálfbærar og nærandi ferðavenjur
  • Hnitmiðaður leiðarvísir fyrir kennara og leiðbeinendur með verkefnum og umræðupunktum
  • Stafrænt „Regenerative Map“ – kort sem tengir ungmennahópa við staðbundin verkefni, t.d. náttúruvernd, hreinsunarátök eða menningarverkefni

Efnið verður prófað með samstarfsaðilum og aðlagað að mismunandi aðstæðum, m.a. á Reykjanesi þar sem tenging við Reykjanes UNESCO Global Geopark og staðbundna hagsmunaaðila verður lykilatriði.

Samstarf við samfélagið

Verkefnið felur jafnframt í sér vinnustofur með hagaðilum, sveitarfélögum, fræðlsu- og ferðaþjónustuaðilum á Reykjanesi. Markmiðið er að tryggja að heimsóknir ungmennahópa og gesta styðji við staðbundnar áherslur og skapi virði fremur en álag.

Þannig styrkir Green Footprint samtal milli ferðaþjónustu, menntunar og samfélags – og fellur vel að þeirri stefnu sem unnið er eftir á Reykjanesi um sjálfbæra og nærandi ferðaþjónustu.

Verkefnisfundir í Lanzarote, Ítalíu og á Íslandi

Fyrsti fundur verkefnisins fer fram hjá samstarfsaðilum okkar á Lanzarote dagana 10.–11. mars 2026. Þar verður lagður grunnur að vinnunni, verkáætlun staðfest og fyrstu skref tekin í þróun fræðsluefnisins. Í haust hittist hópurinn á Ítalíu en síðasti fundur verkefnisins verður haldinn á Íslandi í lok verkefnatímans. Þar verða niðurstöður kynntar, verkefnið metið og unnið að áframhaldandi nýtingu og innleiðingu verkefnisins hér á landi.

Framhald og áhrif

Niðurstöður verkefnisins verða aðgengilegar opinberlega í gegnum Erasmus+ vettvanginn og miðlað í gegnum miðla Markaðsstofu Reykaness og samstarfsnets verkefnisins.

Með Green Footprint er stigið mikilvægt skref í átt að því að gera sjálfbærni og nærandi ferðamennsku að eðlilegum hluta af undirbúningi ungmennahópa – bæði á Reykjanesi og víðar í Evrópu.

Visit Reykjanes hlakkar til samstarfsins og til að vinna verkefnið áfram með evrópskum samstarfsaðilum og hagaðilum á svæðinu.

Hægt er að finna frekari upplýsingar um verkefnið og framgang þess hér.