Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Green Footprint – Preparing Youth for Sustainable and Regenerative Travel Practices er evrópskt samstarfsverkefni styrkt af Erasmus+. Markaðsstofa Reykjaness (Visit Reykjanes) leiðir verkefnið.

Verkefnið hófst í upphafi árs 2026 og stendur fram til júlí 2027. Aðrir samstarfsaðilar í verkefninu eru CABILDO INSULAR DE LANZAROTE (Lanzarote Geopark) á Spáni og Galileo.it S.r.l. á Ítalíu.

Markmið verkefnisins

Markmið Green Footprint er að undirbúa ungt fólk, kennara og skipuleggjendur ferða fyrir ábyrgar og nærandi ferðavenjur.

Verkefnið leggur áherslu á að ungmennahópar sem ferðast milli landa:

  • skilji áhrif sín á náttúru og samfélög
  • tileinki sér sjálfbæra hegðun
  • geti lagt jákvætt af mörkum til þeirra staða sem þeir heimsækja

Á Reykjanesi, þar sem viðkvæm náttúra og jarðfræðileg sérstaða krefjast ábyrgðar, er þetta sérstaklega mikilvægt.

Helstu afurðir

Í verkefninu verða þróuð og prófuð:

  • Fræðslumyndbönd fyrir ungt fólk um sjálfbærar og nærandi ferðavenjur
  • Leiðarvísir fyrir kennara og leiðbeinendur með hagnýtum verkefnum
  • Stafrænt „Regenerative Map“ – kort sem tengir ungmennahópa við staðbundin verkefni og tækifæri til þátttöku

Efnið verður prófað af samstarfsaðilum í öllum löndunum og aðlagað að ólíkum aðstæðum áður en það verður gert aðgengilegt opinberlega í gegnum Erasmus+ vettvanginn og net samstarfsaðila.

Verkefnafundir

Verkefnið felur í sér þrjá lykilfundi á verkefnatímanum, auk reglulegra stöðufunda í gegnum fjarfundabúnað:

  • Upphafsfundur á Lanzarote – 10.–11. mars 2026
    Þar verður lagður grunnur að vinnunni, verkáætlun staðfest og þróun fræðsluefnis formlega hafin.
  • Vinnufundur á Ítalíu – haustið 2026
    Fundurinn verður haldinn hjá samstarfsaðilum okkar, Galileo.it S.r.l., þar sem fyrstu drög að fræðslumyndböndum, leiðarvísi og stafrænu korti verða yfirfarin og þróuð áfram. Þar verður jafnframt unnið úr endurgjöf frá hagaðilum og kennurum til að tryggja að efnið sé hagnýtt og aðlagað raunverulegum aðstæðum.
  • Loka­fundur á Íslandi – í lok verkefnatímans 2027
    Þar verða niðurstöður kynntar, verkefnið metið og unnið að áframhaldandi innleiðingu og nýtingu hér á landi.

Fylgstu með framgangi verkefnisins

Á þessari síðu verður birt reglulega:

  • Fréttir af verkefnisfundum og vinnustofum
  • Uppfærslur um þróun fræðsluefnis
  • Upplýsingar um þátttöku hagaðila á Reykjanesi
  • Niðurstöður og útgefið efni

Við hvetjum áhugasama – skóla, ferðaþjónustuaðila, sveitarfélög og aðra hagaðila – til að fylgjast með og taka þátt í samtalinu um hvernig ungmennaferðir geta orðið sjálfbærar og nærandi fyrir bæði gesti og gestgjafa.

Fréttir

  • Jakob frá Odsherred jarðvangi sýnir hópnum nýjan jarðminjastað

    Endurmenntunarferð kennara til Danmerkur styrkir sjálfbærni- og útikennslu í UNESCO skólum

    Dagana 15.–19. mars tóku kennarar af Reykjanesi þátt í alþjóðlegri endurmenntunarferð til Danmerkur þar sem áhersla var lögð á sjálfbærni, loftslagsfræðslu og vettvangsnám. Ferðin er hluti af Erasmus+ verkefninu „Tides of Change“, sem miðar að því að efla samstarf UNESCO skóla og styrkja tengsl nemenda við náttúru og nærumhverfi í gegnum nýjar kennsluaðferðir.
  • Green Footprint: Nýtt Erasmus+ samstarfsverkefni um ábyrga hegðun ferðamanna hófst í Lanzarote

    Green Footprint er nýtt Erasmus+ samstarfsverkefni sem miðar að því að efla ábyrgari hegðun ferðamanna og styðja við sjálfbæra og nærandi ferðamennsku. Fyrsti fundur verkefnisins fór fram á Lanzarote í mars þar sem samstarfsaðilar mótuðu sameiginlega sýn og næstu skref.
  • Reykjanes á alþjóðlegu ferðasýningunni ITB Berlin

    Markaðsstofa Reykjaness tók þátt í ferðasýningunni ITB Berlin dagana 3.–5. mars, einni stærstu ferðaþjónustusýningu heims. Þar kynntu íslensk ferðaþjónustufyrirtæki og markaðsstofur landshlutanna þjónustu sína og upplifanir fyrir alþjóðlegum ferðakaupendum og samstarfsaðilum.
  • Ferðaþjónusta og landeigendur – upplýsingar vegna Almyrkva 2026

    Undirbúningur fyrir almyrkva þann 12. ágúst 2026 er í fullum gangi á Reykjanesi. Um er að ræða einstakan atburð sem mun laða að mikinn fjölda gesta, bæði innlendra og erlendra, og kallar á vandaðan undirbúning í samstarfi við ferðaþjónustu, landeigen…