Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Markaðsstofa Reykjaness, Íslenski ferðaklasinn og Keilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, hafa undirritað samkomulag um stofnun Nýsköpunarakademíu ferðaþjónustunnar.

Með stofnun akademíunnar verður til sameiginlegur vettvangur ferðaþjónustu, menntastofnana og hagsmunaaðila til að efla nýsköpun, fræðslu, endurmenntun og tengslanet, ásamt því að stuðla að framþróun, sjálfbærni og ábyrgri ferðaþjónustu sem og þverfaglegum innlendum og erlendum samstarfsverkefnum.

Á þeim fordæmalausu tímum sem nú eiga sér stað eru tækifæri til þess að búa til vettvang þar sem unnið er markvisst að helstu þáttum virðiskeðju ferðaþjónustunnar svo sem fræðslu, nýsköpun, samstarfsverkefnum og framþróun. Að auki hefur sjaldan verið jafn mikilvægt að hlúa að aðilum ferðaþjónustunnar og skapa frjótt umhverfi þar sem frumkvöðlar og hagsmunaaðilar fá tækifæri til að leiða saman krafta sína.

Staðsett í aðalbyggingu Keilis í Ásbrú

Nýsköpunarakademía ferðaþjónustunnar verður til húsa í frumkvöðlasetrinu Eldey sem er staðsett í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ. Áhersla verður lögð á að vera leiðandi aðili í fjarnámsframboði fyrir ferðaþjónustuna og tryggja aðgengi sem flestra að námskeiðum, upplýsingafundum og fræðslu.

Fjölbreytt námsframboð fyrir ferðaþjónustuna

Meðal fyrstu verkefna hinnar nýstofnuðu Nýsköpunarakademíu ferðaþjónustunnar verður að þróa úrræði fyrir fyrirtæki og einstaklinga úr greinum ferðaþjónustunnar, með áherslu á aðgengi að fjölbreyttum námskeiðum. Nú þegar hefur verið farið af stað með gerð á annan tug hagnýttra námskeiða sem munu auka færni og þekkingu þeirra sem tengjast ferðaþjónustu og hafa hug á vinnu við greinina í framtíðinni. Sérstaklega verður hugað að þeim einstaklingum sem hafa misst vinnu í kjölfar erfiðleika í ferðaþjónustunni undanfarið. Fyrirhugað er að kennsla hefjist í byrjun janúar og verða námskeiðin kennd í fjarnámi bæði á ensku og íslensku.

Hér má nálgast yfirlit yfir þau námskeið sem eru fyrirhuguð

Samstarfsverkefni

Markaðsstofa Reykjaness tekur þátt í fjölþjóðlegu samstarfsverkefni sem tengjast þróun námsframboðs í ferðaþjónustu auk þess sem markaðsstofan vinnur að því að ýta undir verkefni sem stuðla að aukinni þekkingu, eflingu tengslanets, vöruþróunar og nýsköpunar fyrir ferðaþjónustu á Reykjanesi.

Samstarfsaðilar og verkefnastjóri

Stofnaðilar Nýsköpunarakademíu ferðaþjónustunnar trúa á bjarta framtíð ferðaþjónustunnar og vilja með samstarfi sínu leggja til vettvang sem hraðar mikilvægri þróun, bíður uppá framúrskarandi fræðslu með áherslu á nýsköpun, vöruþórun og samstarfi ólíkra aðila í virðiskeðju ferðaþjónustunnar.

Samstarfsaðilar Nýsköpunarakademíu Keilis eru:

Þórir Erlingsson, verkefnastjóri hjá Keili, mun halda utan um verkefnið. Hann er með meistaragráðu í International Hospitality and Tourism Management frá Háskólanum í Suður-Karolínu í Bandaríkjunum, tók þátt í þróun áfanga í sjálfbærni og ferðaþjónustu við Kennesaw State University í Atlanta og hefur kennt í ferðamáladeild Háskólans á Hólum frá árinu 2017.

Fréttir af Nýsköpunarakademíu Ferðaþjónustunnar

  • 20 milljónir í aukna sjálfbærni - fyrirtæki á Reykjanesi fá styrk til að innleiða aukna sjálfbærni
    18 fyrirtæki af öllu landinu hljóta verkefnastyrk til að innleiða aukna sjálfbærni í daglegan rekstur
  • Lausnamótið Hacking Reykjanes haldið í mars
    Lausnamótið Hacking Reykjanes verður haldið 17.-19. mars n.k.
  • Frumkvöðlar í ferðaþjónustu - hvar á að byrja?
    Næsta námskeið fyrir frumkvöðla með hugmynd á fyrstu stigum í ferðaþjónustu fer fram 11. og 17. febrúar.
  • Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Ratsjána fyrir árið 2022
    Ratsjáin // Masterclass // 8.vikna þjálfunar og leiðtogaprógramm fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu og tengdum greinum