Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Green Footprint: Nýtt Erasmus+ samstarfsverkefni um ábyrga hegðun ferðamanna hófst í Lanzarote

Green Footprint er nýtt Erasmus+ samstarfsverkefni sem miðar að því að efla ábyrgari hegðun ferðamanna og styðja við sjálfbæra og nærandi ferðamennsku. Fyrsti fundur verkefnisins fór fram á Lanzarote í mars þar sem samstarfsaðilar mótuðu sameiginlega sýn og næstu skref.

Fyrsti fundur Green Footprint verkefnisins fór fram dagana 9.–10. mars á Lanzarote á Spáni. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ og miðar að því að efla meðvitund og hvetja til ábyrgari hegðunar ferðamanna, með sérstaka áherslu á ungt fólk.

Green Footprint – Preparing Youth for Sustainable and Regenerative Travel Practices – er evrópskt samstarfsverkefni sem hófst í upphafi árs 2026 og stendur fram til júlí 2027. Verkefnið er leitt af Visit Reykjanes og unnið í samstarfi við Galileo á Ítalíu, Lanzarote and Chinijo Islands UNESCO Global Geopark á Spáni og GeoCamp Iceland.

Verkefnið miðar að því að efla færni og meðvitund ungs fólks, kennara og skipuleggjenda ferða til að stuðla að ábyrgari og sjálfbærari ferðavenjum. Áhersla er lögð á að auka skilning á áhrifum ferðalaga á náttúru og samfélög og stuðla að ábyrgari ferðavenjum. Þetta er sérstaklega mikilvægt á svæðum eins og Reykjanes, þar sem viðkvæm náttúra og jarðfræðileg sérstaða krefjast aukinnar ábyrgðar.

Á fundinum á Lanzarote komu samstarfsaðilar saman til að móta sameiginlega sýn verkefnisins og leggja grunn að næstu skrefum í framkvæmd þess. Dagskráin samanstóð af vinnustofum og vettvangsferðum þar sem þátttakendur kynntu sér einstakt eldfjallalandslag svæðisins og ræddu helstu áskoranir í ferðaþjónustu, svo sem álag á viðkvæma náttúru, skort á vitund ferðamanna og áhrif samfélagsmiðla á ferðavenjur.

Eitt af meginmarkmiðum verkefnisins er að þróa einfalt og aðgengilegt fræðsluefni sem styður við betri ákvarðanatöku ferðalanga. Þar verður meðal annars lögð áhersla á stutt og áhrifarík myndbönd sem sýna bæði hvað ber að varast og hvernig hægt er að ferðast á ábyrgan og uppbyggilegan hátt. Í verkefninu verða jafnframt þróuð fleiri verkfæri, þar á meðal leiðarvísir fyrir kennara og leiðbeinendur með hagnýtum verkefnum, sem og stafrænt „Regenerative Map“ sem tengir ungmennahópa við staðbundin verkefni og tækifæri til þátttöku.

Næsti fundur verkefnisins verður haldinn á Ítalíu haustið 2026 og lokafundur á Íslandi árið 2027, þar sem niðurstöður verkefnisins verða kynntar og unnið að áframhaldandi nýtingu þess.

Hægt er að fylgjast með verkefninu hér.

Hópurinn samankominn fyrir utan safnið La Casa de los Volcanes