Öryggismerkingar komnar upp við Valahnúk og Brú milli heimsálfa
05.10.2026
Í lok ágúst greindum við frá vinnu við að bæta öryggi og merkingar við Valahnúk á Reykjanesi. Verkefninu er nú lokið og hafa nýjar öryggismerkingar og varnarbönd verið sett upp við Valahnúk og Brú milli heimsálfa.
Markmiðið er að vekja athygli á hættum á svæðunum, leiðbeina gestum um örugga umgengni og draga úr slysahættu.
Verkið var unnið í góðu samstarfi Reykjanes jarðvangs og Reykjanesbæjar. Gestir eru hvattir til að fylgja nýjum merkingum og sýna sérstaka aðgát í slæmu veðri.