Áfangastaðaáætlun Reykjaness komin á eigin vef
Áfangastaðaáætlun er sameiginleg stefna svæðisins í ferðamálum. Hún sameinar sýn sveitarfélaga, atvinnulífs, stofnana og íbúa um hvernig ferðaþjónusta á Reykjanesi á að þróast í sátt við náttúru og samfélag. Með nýja vefnum viljum við gera áætlunina aðgengilegri og sýnilegri, bæði fyrir þá sem vinna að þróun svæðisins og alla sem hafa áhuga á framtíð ferðaþjónustunnar á Reykjanesi.
Hvað er á vefnum?
- Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027 – framtíðarsýn, markmið, áherslur og aðgerðir.
- Uppbyggingarverkefni á Reykjanesi – um 100 áningarstaðir og uppbyggingarverkefni, flokkuð eftir sveitarfélögum og uppbyggingarsvæðum Reykjanes Geopark, ásamt yfirlitskorti.
- Stöðugreining – lykiltölur og staða ferðaþjónustunnar á svæðinu.
- Þróunarverkefni – verkefni sem Markaðsstofan vinnur að með samstarfsaðilum, á svæðinu og á alþjóðavettvangi.
- Fróðleikur – hugtakalykill, efni um sjálfbæra og nærandi ferðaþjónustu og Cruise Ready-handbókin um móttöku skemmtiferðaskipa.
- Samstarfsfyrirtæki – upplýsingar um samstarfið og hvernig fyrirtæki geta tekið þátt.
Lifandi áætlun
Áætlunin er unnin af Markaðsstofu Reykjaness í samstarfi við sveitarfélögin á Suðurnesjum, Reykjanes UNESCO Global Geopark og aðra hagaðila. Hún er lifandi skjal og verður vefurinn uppfærður jafnóðum, t.d. þegar uppbyggingarverkefni komast á framkvæmdastig eða ljúka.
Ábendingar og fyrirspurnir eru vel þegnar á markadsstofa@visitreykjanes.is.