Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fækkar um 16,7% milli ára

Samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll um 195 þúsund í júnímánuði eða um 39 þúsund færri en í júní árið 2018, . Fækkun milli ára nemur því 16,7%.

Fækkun hefur verið alla aðra mánuði frá áramótum, í janúar fækkaði brottförum um 5,8%, í febrúar um 6,9%, í mars um 1,7%, í apríl um 18,5% og um 23,6% í maí.

Frá áramótum hafa 900 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 12,4% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.

Um 64 þúsund Íslendingar fóru utan í júní í ár eða 9% færri en í júní 2018. Frá áramótum hafa 307 þúsund Íslendingar farið utan eða 4,9% færri en á sama tímabili í fyrra.

Ferðamálastofa greinir frá en nánar má lesa hér.