Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Eldfjallaleið - vinnustofa

5. desember kl. 10:00-12:00

Markaðsstofur Reykjaness og Suðurlands hafa tekið höndum saman um að setja á laggirnar ferðaleið um suðurströnd Íslands sem leggur áherslu á eldfjöll og eldvirkni á svæðinu.

Ferðaleiðin, sem ber vinnuheitið Eldfjallaleiðin (The Volcanic way), er ætluð sem verkfæri heimamanna til þess að leiða framþróun í ferðaþjónustu ásamtþví að draga fram núverandi innviði. Með því að stofna slíka ferðaleið sjáum við fyrir okkur að fá ferðamenn sem dvelja lengur og tengja betur við náttúru og samfélag.

Eldfjallaleiðin er hönnuð með hag nærsamfélagsins að leiðarljósi. Opnar vinnustofur verða haldnar í nóvember og desember þar sem við vonumst til þess að fá innlegg sem flestra sem koma að ferðaþjónustu á svæðunum.

Verkefnisstjórar eru Vala Hauksdóttir hjá Markaðsstofu Suðurlands og Eyþór Sæmundsson hjá Markaðsstofu Reykjaness.

Reykjanes: Bláa Lónið 5. des 10:00-12:00

Skrá sig á vinnustofu

GPS punktar

N63° 52' 45.021" W22° 26' 39.558"

Staðsetning

Blue Lagoon, Norðurljósavegur, Grindavíkurbær, Southern Peninsula, 240, Iceland