Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Opinn fundur - Afbygging stóriðju í Helguvík

4. apríl kl. 17:30-19:30
Afbygging stóriðju í Helguvík - Opinn borgarafundur verður haldinn fimmtudaginn 4. apríl kl. 17:30 - 19:30 í Listasafni Reykjanesbæjar.
 
Fundurinn mun fjalla um stöðu verksmiðjunnar í Helguvík og staðarins í tengslum við samfélagið, sjálfbærni og vernd náttúrunnar á svæðinu og ímyndaðrar framtíðar.
 
Meðal þátttakenda verða: Libia Castro & Ólafur Ólafsson, Töfrateymið, Andstæðingar stóriðju í Helguvík, umhverfisverndarsinninn og fyrrverandi framkvæmdarstjóri Landverndar Auður Önnu Magnúsdóttur, samtökin Landvernd, hagfræðingurinn Ásgeir Brynjar Torfason, arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir, aðrir umhverfisverndarsinnar, bæjarstjóri Reykjanesbæjar Kjartan Már Kjartansson, íbúar Reykjanesbæjar og nærsamfélaga og sýningarstjórinn Jonatan Habib Engqvist.
 
Öllum þingmönnum og ráðherrum íslensku ríkisstjórnarinnar verður sérstaklega boðin þátttaka á opna fundinum.
 
Við hvetjum öll til að mæta og taka þátt. Verið velkomin!
 

Staðsetning

Listasafn Reykjanesbæjar

Sími