Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hætta á hruni úr Valahnúki

Lokað hefur verið fyrir göngu upp á Valahnúk á Reykjanesi vegna hættu á hruni.
Mikil hætta á hruni úr bergi Valahnúks.
Mikil hætta á hruni úr bergi Valahnúks.

Frá því í desember 2016 hefur verið lokað fyrir uppgöngu á Valahnúk á Reykjanesi. Ákvörðun um lokun var var m.a. tekin í samráði við Almannavarnanefnd Suðurnesja vegna hættu á hruni úr brún hnúksins.


Hrunið úr Valahnúki

Á meðfylgjandi myndum og myndbandi sem teknar voru 15. desember sl. má sjá að enn er mikil hætta á hruni úr Valahnúk og varhugavert að vera á ferli nálægt brún hnúksins þegar hrynur úr henni.

 

Fyrir ári síðan var lokað fyrir uppgöngu á Valahnúk með kaðli við göngustíg sem liggur meðfram ströndinni. Auk þess voru settar upp öryggismerkingar. Stuttu síðar var öðrum kaðli bætt við ofar í hnúknum og nær brúninni. Í haust voru tröppur sem lágu neðarlega í hnúknum fjarlægðar m.a. með það að markmiði að fólk gengi síður á hnúkinn.

Miklar sprungur í Valahnúki
Reykjanes Geopark mun kanna á næstunni til hvaða aðgerða hægt verður að grípa til þess að koma upplýsingunum um hvaða hættur beri að varast við útivist við Valahnúk betur á framfæri við ferðamenn og aðra gesti á svæðinu.

Lokað upp á Valahnúk.