Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kynningarfundur um Vegvísi ferðaþjónustunnar

Vegvísir ferðaþjónustunnar verður kynntur í Hljómahöll mánudaginn 16. nóvember kl. 20.

Kynning á nýjum Vegvísi ferðaþjónustunnar er fyrirhugaður á Reykjanesi mánudaginn 16. nóvember n.k.

Fundurinn fer fram í Hljómahöll í Reykjanesbæ kl. 20, þar sem fulltrúar SAF og Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins munu kynna vegvísinn. 

Frekari upplýsingar um Vegvísi ferðaþjónustunnar má finna á www.ferdamalastefna.is 

Við hvetjum alla ferðaþjónustuaðila og aðra hagsmunaaðila til að mæta og fá svör við þeim spurningum sem brenna á.