Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Er Reykjanesið einn af rómantískustu stöðum í heimi?

USA TODAY hefur tilnefnt Reykjanesið í samkeppni um óþekktu eða under-the-radar rómantískustu staði í heiminum.

USA TODAY tilkynnti nú í vikunni topp 20 staði sem keppa nú um að vera besti óþekkti eða under-the-radar rómantíski staðurinn í heiminum. Reykjanesskaginn er einn af þeim stöðum sem tilnefndur er og keppir um að vera einn af þeim tíu bestu. 

Á síðu USA TODAY er hægt að taka þátt í kosningunni sem stendur yfir í fjórar vikur og líkur henni þann 3. ágúst n.k. Hver og einn getur kosið einu sinni á dag fram að lokadegi kosningarinnar. Sigurvegarar munu verða tilkynntir þann 7. ágúst.

Ýttu hér til að taka þátt í kosningunni.  

Við erum að vonum ánægð með tilnefninguna og hvetjum ykkur til að taka þátt og dreifa boðskapnum.