Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Upplýsingar um útgefin rekstrarleyfi fyrir veitinga- og gististaði nú á vef sýslumanna

Upplýsingar um öll útgefin rekstrarleyfi fyrir veitinga- og gististaði má nú nálgast á vef sýslumanna, en til þessa hafa þær verið hýstar á vef lögreglunnar.

Upplýsingar um öll útgefin rekstrarleyfi fyrir veitinga- og gististaði má nú nálgast á vef sýslumanna, en til þessa hafa þær verið hýstar á vef lögreglunnar. Þetta kemur fram á vefnum syslumenn.is

Samkvæmt 20. gr. laga nr. 85/2007 um veitinga- og gististaði ber leyfisveitanda að halda skrá um útgefin rekstrarleyfi í miðlægu leyfakerfi, sem nánar er kveðið á um í reglugerð og birta rekstrarleyfi í gildi með aðgengilegum hætti, svo sem á heimasíðu sinni.  Skráin skal innihalda upplýsingar um nafn leyfishafa, kennitölu, hvar aðalstarfsemin er rekin, útgáfu rekstrarleyfis og annað sem ákveðið kann að vera í reglugerð. Allar þessar upplýsingar verður hægt að finna á þessari síðu auk þess sem leita má á síðunni eftir heiti leyfishafa, póstnúmerum, leyfiveitendum o.fl. 

Stefnt er að því að upplýsingarnar verði uppfærðar vikulega en þær má nálgast hér: http://www.syslumenn.is/thjonusta/utgefin-leyfi/veitinga-og-gististadir/