⚠ Eldgos á Reykjanesi. Sjá uppfærðar fréttir hér!
Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu
Markaðsstofa Reykjaness í samvinnu við AECO hafa unnið að gerð handbókar fyrir hagsmunaaðila á Reykjanesi, um móttöku skemmtiferðaskipa undanfarið ár. Stefnt er að því að hún verði tilbúin í vor og er því kallað eftir aðkomu allra hagsmunaaðila að rýna í handbókina saman, þannig að hún komi til með að nýtast í framhaldinu til að stuðla að tækifærum til vöruþróunar á svæðinu en ekki síður til virðisauka fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á svæðinu.Handbókin er skrifuð á ensku, en verður þýdd yfir á íslensku í framhaldi fundarins. Vinnufundurinn verður á íslensku.Dagskrá Cruise Ready Reykjanes
Skráðir þátttakendur á vinnustofuna fá senda handbókina til yfirlestrar frá og með 11. mars n.k. Skráið ykkur til leiks hér fyrir neðan!