Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hidden Iceland

- Hellaskoðun

Hidden Iceland er fjölskyldurekið ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í dagsferðum sem og pakkaferðum hér á landi. Við leggjum mikið upp úr því að bjóða upp á persónusniðnar ferðir með litlum hópum, að hámarki 12 manns, um land allt.

Í öllum ferðum Hidden Iceland fer reyndur leiðsögumaður með hópinn sem fræðir og skemmtir en umfram allt sér til þess að fyllsta öryggis sé gætt. Leiðsögumenn okkar hafa allir áralanga þjálfun, þekkingu á Íslandi, sögunni og jarðfræðinni. Við höfum hannað ferðirnar okkar þannig að við værum ekki bara spennt heldur stolt að taka fjölskyldu okkar og vini með í för til að upplifa töfra Íslands.

Áætlunarferðir
Hidden Iceland býður upp á úrval dags og pakkaferða frá Reykjavík. Hvort sem það er dagsferð um gullna hringinn í náttúruböðum og matarupplifun, tveggja daga ævintýraferð um suðurströndina endilanga með jöklagöngu á einum af stórkostlegu jöklunum innan Vatnajökulsþjóðgarðs eða fjögurra daga ferðalag um vestfirsku fjöllin og firðina.

Sérferðir og ferðaskipulagning
Hidden Iceland býður einnig upp á sérferðir fyrir pör og hópa hvort sem að það eru dagsferðir frá Reykjavík eða lengri ferðir hringinn í kringum landið. Ferðirnar eru allar sérsniðnar að hverjum hóp fyrir sig, með eða án leiðsagnar, þar sem Hidden Iceland sér um að bóka gistingu, afþreyingu og samgöngur.

Hvataferðir og fyrirtækjapakkar
Við bjóðum upp á ýmsar spennandi hvataferðir og fyrirtækjapakka sem er sérsniðinn að þínum hóp. Tilvalið fyrir árshátíðarferðina, stórafmælið eða hópeflið. Hafið samband við Hidden Iceland og við setjum saman fullkomna ferð fyrir þinn hóp.

Þá er ekkert annað að gera en að reima á sig gönguskónna og slást í för með okkur í næsta ævintýri! Við hlökkum til að fá ykkur með.

Frekari upplýsingar má nálgast á www.hiddeniceland.is eða senda tölvupóst á info@hiddeniceland.is

Hidden Iceland

Hidden Iceland

Hidden Iceland er fjölskyldurekið ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í dagsferðum sem og pakkaferðum hér á landi. Við leggjum mikið upp úr því að
DIVE.IS

DIVE.IS

DIVE.IS / Sportköfunarskóli Íslands var stofnaður árið 1997 til þess að kenna fólki að kafa og hefur haldið fjölmörg köfunarnámskeið í gegnum tíðina.
Basecamp Iceland

Basecamp Iceland

Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana.
Your Friend In Reykjavík

Your Friend In Reykjavík

Your Friend In Reykjavik býður upp á gönguferðir & ökuleiðsögn í og út frá Reykjavík og og hefur verið starfandi frá árinu 2015.  Matar, Sögu, Huliðsh
Pink Iceland

Pink Iceland

Pink Iceland sérhæfir sig í skipulagningu ferða, afþreyingar, viðburða og brúðkaupa fyrir hinsegin ferðamenn. Pink Iceland býður upp á sérsniðnar „hin
Guide to Iceland

Guide to Iceland

Guide to Iceland er íslenskt markaðstorg sem sameinar yfir 1500 íslenska ferðaþjónustuaðila. Á heimasíðunni okkar finnur þú allar upplýsingar um ferði
Íslandsstofa

Íslandsstofa

Íslandsstofa er öflugur samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda og miðar að því að auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar með því að efla markaðssók
Norðurflug

Norðurflug

Norðurflug Helicopter Tours er leiðandi þjónustu fyrirtæki í þyrluflugi á Íslandi. Norðurflug státar sig af því að vera stærsta þyrlufélag landsins me

Aðrir (19)

Almenningssamgöngur - 101 Reykjavík -
Almenningssamgöngur - upplýsingasíða - 101 Reykjavík 864-2776
Flugþjónustan ehf. Reykjavíkurflugvöllur 101 Reykjavík 552-1611
Icelandair ehf. Reykjavík Airport 101 Reykjavík 505-0100
Mai Thai Bistro Laugavegur 116 101 Reykjavík 5811440
Martins Omolu Framnesvegur 7 101 Reykjavík 789-2033
TourDesk Lækjartorg 5 101 Reykjavík 5534321
Troll Expeditions Fiskislóð 45G 101 Reykjavík 5195544
BagBee Bjargargata 1 102 Reykjavík 578-5900
Iceland Lux Experiences Einarsnes 58 102 Reykjavík 848-7324
Flugrútan BSÍ Bus Terminal 104 Reykjavík 580-5400
Búngaló Borgartún 29 105 Reykjavík 445-4444
G SPOT ICELAND Skipholt 50 105 Reykjavík 762-6201
Iceland Unlimited ehf. Borgartún 27 105 Reykjavík 415-0600
Made in Mountains Úthlíð 6 105 Reykjavík 868-4750
Þín leið 105 Reykjavík 899-8588
Iceland Untouched Meistaravellir 11 107 Reykjavík 696-0171
Hey Iceland Síðumúli 2 108 Reykjavík 570-2700
Fjallabak Skólavörðustígur 12 121 Reykjavík 824-3072