Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Upplifðu.is

UPPLIFÐU.IS

Upplýsingar um Upplifðu.is

- fyrir samstarfsfyrirtæki og sveitarfélög í Markaðsstofu Reykjaness

Ertu ekki samstarfsaðili? Skráðu þig hér.

Markaðsstofur landshlutanna (MAS), ýttu síðastliðið sumar úr vör samstarfsverkefni sem miðar að því að auðvelda fólki að skipuleggja ferðalög um landið og hvetja það til að heimsækja hina ýmsu staði og upplifa fjölbreytta afþreyingu, mat og drykk. Verkefnið er liður í að stuðla að aukinni dreifingu ferðamanna um landið, lengja dvöl þeirra og styðja við uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu í kjölfar heimsfaraldurs. Þetta er stærsta þróunarverkefni sem MAS hefur tekið sér fyrir hendur.

Gagnvirkt vefsvæði, www.upplifdu.is, var opnað síðasta sumar. Þar gefst notendum kostur á að sníða ferðalagið nákvæmlega eftir sínu höfði og fá aðstoð við að sjá hvað er í boði á hverjum stað, fá nákvæma tímaáætlun milli áfangastaða og síðast en ekki síst, uppgötva nýja möguleika á myndrænan hátt.

Kerfið er sett upp af söfnum af 10 sekúndna myndböndum af áhugaverðum stöðum og afþreyingu í hverjum landshluta. Hluti af þróun Upplifðu var einnig bakendakerfi fyrir Markaðsstofurnar og samstarfsaðila þeirra. Í því kerfi er hægt að nálgast öll myndböndin sem eru í kerfinu og hægt að raða þeim saman eftir hentugleika hvers og eins. Í kerfinu eru einnig ljósmyndir sem gagnast samstarfsaðilum í þeirra efni og efnissköpun.

Skilmálar vegna efnisnotkunar úr bakendakerfi Upplifðu

Samstarfsaðilar Markaðsstofanna hafa fullan aðgang að bakendakerfi Upplifðu. Allt efni sem er vistað inn á bakenda má hver og einn samstarfsaðili nota á sínum miðlum. Miðlar samstarfsfyrirtækja geta verið heimasíður, samfélagsmiðlar, bæklingar og fleira. Ekki má afhenda þriðja aðila efnið. Ef spurningar vakna eða eitthvað er óljóst, hafðu samband við þína markaðsstofu til að fá aðstoð.

Hvar fæ ég úthlutað notendanafni og lykilorði?

Allir samstarfsaðilar geta sótt um aðgang með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

https://media.upplifdu.is/signup/

Ertu ekki samstarfsaðili? Sæktu um hér.

Algengar spurningar

Hvað gerist ef ég týni lykilorði? – vefurinn býður upp að fá lykilorð endursett á þessum hlekk https://media.upplifdu.is/passwordreset/

Hvað gerist ef ég hætti í minni Markaðsstofu? Þá er þínum aðgangi lokað og þú hefur ekki lengur heimild til þess að nýta efnið og verður að fjarlægja það af vefsíðu.

Ferðaskrifstofa sem ég er í viðskiptum við vill fá efni, hvað geri ég? – Aðrir en samstarfsaðilar markaðsstofa fá sérstakan skoðunaraðgang sem hægt er að vísa á með þessari slóð https://media.upplifdu.is/preview/nordurland/

Fá þeir sem hafa aðgang að kerfinu og eru í ekki í samstarfi við markaðsstofu sama efni? – Nei, þeir sem ekki eru í samstarfi fá ekki aðgang að bakenda, en ferðaskrifstofur, fjölmiðlar og tengdir aðilar sem kynna landshlutann sem áfangastað geta fengið aðgang að hluta af ljósmyndum og öll myndbönd eru vatnsmerkt.

Ferðaskrifstofa sem ég er í viðskiptum við vill fá myndband sem er ekki merkt hvað geri ég? – Ef ferðaskrifstofan er að auglýsa þína vöru fyrir þig þá má hún nota efnið sem þú lætur henni í té. Ferðaskrifstofur og blaðamenn geta óskað eftir ákveðnu efni ómerktu í gegnum þá markaðsstofu sem við á.

Hvað kostar aðgangurinn? – Bakendakerfi Upplifðu er innifalið í samstarfssamningi við markaðsstofu.

Frekari upplýsingar má nálgast hjá starfsmönnum markaðsstofunnar, markadsstofa@visitreykjanes.is.

Hvað gerist ef ég hætti í minni markaðsstofu? Þá er þínum aðgangi lokað og þú hefur ekki lengur heimild til þess að nýta efnið og verður að fjarlægja það af vefsíðu.